samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Frú forseti. Nú ræðum við nýja samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038. Ég ætla kannski bara að byrja á að ræða varaflugvallargjaldið sem er nú búið að vera mér hjartans mál síðan ég kom á þing fyrir sjö árum. Þetta er raunverulega það eina í kerfinu sem er fjármagnað að fullu, virðist vera, og gjaldið verður tekið núna eftir næstu mánaðamót. Gamla varaflugvallargjaldið var lagt af í maí 2011. Þá hrundi fjármögnun flugvallakerfis landsins þannig að það hefur verið verulega vanfjármagnað og mikil samgönguskuld eða innviðaskuld, sérstaklega hjá flugvöllum landsins, orðin til síðan þá, hefur orðið til mikið vandamál. Nýtt varaflugvallargjald er í grunninn flugöryggismál, gengur út á það.
Það sem vekur nokkra athygli hjá mér í þessari samgönguáætlun eru aðflugsljósin fyrir Reykjavíkurflugvöll, Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll, hversu seint þau koma fram miðað við að þetta ætti að vera algjört forgangsflugöryggismál. Í Reykjavík er gert ráð fyrir aðflugsljósunum við Skerjafjörðinn til lendingar í Öskjuhlíðinni, 100 milljónir 2027. Á Akureyri er gert ráð fyrir að aðflugsljósum og á Egilsstaðaflugvelli líka á tímabili 2 í áætluninni. Að mínu viti er þetta klárlega mikilvægt flugöryggismál.
Síðan vil ég benda á hversu seint framkvæmdirnar á Egilsstaðaflugvelli koma til. Í framkvæmdahlutanum fyrstu fimm árin er gert ráð fyrir 1.450 milljónum í Egilsstaðaflugvöll og ég tel að það ætti að fara hraðar í það. Það er gríðarlega mikilvægt flugöryggismál að byggja hratt upp á Egilsstöðum og þá sérstaklega akstursbraut við norðurenda flugbrautarinnar, þessa lúppu sem hefur verið talað um og gæti þá tekið fjórar, fimm, sex vélar. Það væri mikið flugöryggismál. Miðað við fjármögnun kerfisins sem kemur í gegnum varaflugvallargjaldið held ég að hægt sé að gera töluvert meira. Það væri frábært ef hæstv. ráðherra gæti komið aðeins inn á það af hverju við erum ekki að nýta meira af því sem mun koma í gegnum varaflugvallargjaldið í fyrsta hluta áætlunarinnar. Við sjáum að á fyrstu fimm árunum er þetta frá 214 milljónum og upp í, þegar mest lætur, 1.085 milljónir eða rúman milljarð. Við gætum kannski reiknað með að það gætu komið inn 1.400–1.600 milljónir í gegnum varaflugvallargjaldið. Þetta eru miklar og mikilvægar framkvæmdir sem þarf að fara í á Egilsstöðum og við þurfum að leiðrétta þessa innviðaskuld sem hefur orðið til í flugvallakerfinu. Það er auðvitað, eins og kemur fram í samgönguáætluninni, gríðarlega mikilvægt til þess að styrkja og viðhalda öflugri tengimiðstöð á Keflavíkurvelli að varaflugvallakerfið byggist upp og fjármagni sé varið til þessara hluta sem gert er ráð fyrir með varaflugvallargjaldinu.
Mig langar síðan aðeins að hlaupa á því sem hefur verið mikið rætt hér í dag og það eru brýrnar yfir Skjálfandafljót, sérstaklega sú gamla á norðausturvegi, vegi nr. 85. Það er brú sem var tekin í notkun 1935, það styttist í að hún verði aldargömul. Henni hefur hrakað gríðarlega hratt núna á undanförnum misserum og það er mikilvægt að ná henni sem fyrst fram og að sveitarfélagið klári náttúrlega sinn skipulagshluta og hefji og klári samtalið við landeigendur um þá framkvæmd og legu fyrir vegstæði. Það er einnig, eins og kom fram hér í dag, mikilvægt að brúin á Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1 — henni er raunverulega að seinka um tvo áratugi. Þegar Holuhraunsgosið kemur 2014, ef ég man rétt, fór mikil endurskoðun fram varðandi brúna og hún var færð til, sett upp á kletta til þess að hún myndi þola stærri flóð og mér skilst að hönnun á því verki sé langt komin. Þetta er gríðarlega mikilvægt til þess að tengja saman Norður- og Austurland. Núna í kjördæmaviku í síðustu viku komu fram í máli sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi miklar áhyggjur af neðri brúnni, sem sagt brúnni sem er neðar í ánni, við Ásbyrgi. Hún sé mjög illa farin og það sé nauðsynlegt að huga að því að koma henni inn á áætlun, hún er ekki í neinum áætlunum í dag.
Varðandi það að gera átak í því að stytta ferðatíma þá ætti það að mínu viti að vera hv. þingmanns sem stendur hér að kalla eftir átaki í að stytta ferðatímann milli Eyjafjarðar og höfuðborgarsvæðisins. Það myndi auðvitað nýtast um allt norður og austur um allt land. Það er vitanlega líka mikið umferðaröryggismál. Húnavallaleið í einkaframkvæmd er einn af mörgum liðum í því að stytta ferðatíma á milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur eða höfuðborgarsvæðisins og auðvitað líka frá Egilsstöðum, þ.e. frá Austurlandi um norðurleiðina. Með tiltölulega einföldum hætti er hægt að stytta leiðina um 40 mínútur í heildina með Húnavallaleiðinni, Vindheimaleið í Skagafirði, laga veginn aðeins til við Borgarnes, en þar er komið skipulag sveitarfélagsins og unnið að því að koma umferðinni út úr bænum með þjóðvegi 1, og síðan Sundabrautinni. Með þessu er hægt að stytta aksturstímann á milli um 40 mínútur, sem er umtalsvert.
Þingskjal um Húnavallaleið kom inn í þingið í gær og það sem þingmálið snýst raunverulega um er að koma þessu verkefni inn í samgönguáætlun. Verkefnið var tekið út úr samgönguáætlun fyrir um áratug síðan eftir að hafa verið þar í einhver tíu ár, og einfaldlega óskiljanlegt hvernig staðið var að því eins og við mörg þekkjum.
Þetta er arðsamasta verkefnið sem hægt er að finna í landinu í vegaframkvæmd, 20–27%. En eins og kemur fram í áherslupunktum í samgönguáætluninni þá snýst það náttúrlega líka um fækkun slysa og óhappa. Þetta verkefni er arðsamt og stenst raunverulega allt sem samgönguáætlun gengur út á. Í áherslupunktum í samgönguáætlun kemur fram í kaflanum Markmið um greiðari samgöngur:
„Samgöngur verði áreiðanlegar, samgönguleiðir færar og ferðatími jafn og fyrirsjáanlegur. Jafnframt verði hreyfanleiki fólks og vöru aukinn með styttingu ferðatíma …“
Þar stendur einnig í kaflanum Markmið um öruggar samgöngur:
„Dregið verði úr slysum í samgöngum og leitað leiða til að draga úr afleiðingum þeirra slysa sem verða.“
Það er áhersla á þetta. Það er líka eitt af áhersluatriðum í samgönguáætlun, í kaflanum um markmið um hagkvæmar samgöngur:
„Samgöngur verði sem hagkvæmastar fyrir notendur, fjárfesting í samgönguinnviðum stuðli að þjóðhagslegri arðsemi og samgöngur styðji við efnahagslega þróun og velsæld þjóðarinnar.“
Þetta allt styður Húnavallaleið við, allt sem hér stendur. Það á reyndar líka við um annað verkefni sem er nýr Kjalvegur, sem er einn af fjórum stofnvegum yfir hálendið. Nýr Kjalvegur í einkaframkvæmd myndi hafa gríðarlega þýðingu fyrir Suður- og Norðurland og tengja þessi svæði saman. Nú á tímum þegar hér eru um 30.000 bílaleigubílar í landinu, kannski 6.000 í langtímaleigu og 24.000 á vegum landsins og þetta er 25% umferðinni, þá ættum við að sjá hversu mikilvægt það er að dreifa umferð bílaleigubíla með betri hætti. Þá gætum við kannski farið að tala um Ísland allt árið, sem ætti að vera mikilvægt fyrir okkur.
Varðandi einstök verkefni þá hefur komið fram að það verður farið í Bárðardalsveg á næstu árum, fyrsta áfanga þar, 3–4 kílómetrar. Það verður ánægjulegt því að þetta hefur tafist of mikið á síðustu árum og verkefnið var fært til. Við eigum eftir að huga að Útkinninni og hér hefur verið minnst á Dalsmynni. Það er þó ánægjulegt að í áætluninni er talað um að klára bundið slitlag í Svarfaðardal inn í dalsbotninn þar. Svo er Brekknaheiði á næstu árum. Þegar hún verður kláruð innan þriggja ára verður búið að klára hringinn alla leið út fyrir norðausturhornið sem verður mjög mikilvæg bót, eins og við þekkjum sem höfum keyrt Langanesströndina, síðan sú leið kom til. Öxi og Suðurfjarðarvegur, það eru gríðarlega mikilvæg verkefni. Svo þekkjum við jarðgangaáætlun, hvaða verkefni eru komin þar. Svo eru það Grímseyjar- og Hríseyjarferjurnar, endurnýjun á þeim. Það ætti að vera tiltölulega einfalt með Hríseyjarferjuna að koma henni yfir í rafmagn og er mikilvægt verkefni. (Forseti hringir.)
Síðasti punkturinn sem ég ætla rétt að hlaupa á, sem mér finnst góður en enginn hefur minnst á hér, er menntun í flugi og flugtengdum greinum. (Forseti hringir.) Það er sérstakur áherslupunktur í flugstefnunni og það er eitthvað sem við þurfum virkilega að leggja áherslu á á næstu misserum.