samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Forseti. Ég sá að hv. þingmaður varð fyrir smá vonbrigðum með andsvar. Það var svo áhugavert þegar hv. þingmaður var að tala um kostnaðinn. Ég talaði dálítið um þetta í ræðunni hjá mér áðan, hvernig við höfum ítrekað lofað framkvæmdum úti um allt land og svo einhvern veginn fellur það um sjálft sig þegar fjármagnið fyrir þeim loforðum finnst ekki. Fyrir mig, svona þegar maður er að reyna að skoða þetta, þá er þetta líka rosalega stór efnahagsspurning.
Hv. þingmaður kom inn á það hvernig kostnaður er að breytast, kostnaðaráætlanir að breytast. Já og nei, því að þingið er að samþykkja þessar framkvæmdir og það er svona u.þ.b. þetta kostnaðarmat. Þá finnst mér í rauninni ekki skipta of miklu máli hvað þær kosta þegar allt kemur til alls ef forsendurnar breytast ekki. Það getur orðið ákveðinn forsendubrestur, eins og við höfum talað um, ef vegi er breytt í stokk eða eitthvað svoleiðis, þá er það ekki sama framkvæmd og Alþingi samþykkti. En það vinnst á þennan forgangsröðunarlista að lokum, það fer eftir því hversu mikið ríkisstjórnin nær að fjármagna í hvert skipti. Þannig að jú, þetta er samgönguáætlun fyrir heil 15 ár núna. Kannski tekur 17 ár að vinna niður þennan lista. Kannski tekur það bara 13, það bara fer eftir því hvernig það gengur.
Það er smá hagfræði í þessu. Stöðugleiki. Við erum oft að lenda í þessu, við erum að tala um þessa innviðaskuld sem kostar. Við erum að lenda í því að framkvæmdir sem var lofað frestast aftur og aftur og inn á milli á að vera einhver stöðugleiki sem einhvern veginn verður aldrei. Það er svona hagkerfisspurning þegar allt kemur til alls. Ég hef einmitt heyrt mikið frá Viðreisn um þennan efnahagslega stöðugleika, við siglum þennan ólgusjó sem íslenska krónan skapar og skemmir einhvern veginn allt fyrir okkur og ég sé örðu af því í samgönguáætluninni og ræðu hv. þingmanns.