154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[20:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég átti meira við forgangsröðunina til 15 ára. Það er náttúrlega áætlun líka að þessi forgangsröðun dekki þessi 15 ár. Eins og ég sagði þá gæti sú forgangsröðun klárast á 17 árum eða 13 árum, bara eftir því hvernig fjármögnun þróast, því kannski lærum við loksins eitthvað af því að við erum alltaf að spá á dálítið rangan hátt. Það myndi leiða til þess að fjármagnið væri í raun og veru kannski meira en gert var ráð fyrir og þá gætum við unnið hraðar og betur að því að ná hinu fullkomna samgöngukerfi.

Ég kem alla vega úr þeim geira þar sem það er sífellt verið að leggja mat á áætlanagerðina, hversu góð hún var og hversu vel hún stóðst, til þess að næst þegar það er gerð áætlun þá vitum við betur umfang verkefnanna til að gera nákvæmari áætlun. Þumalputtareglan er að ef við erum alltaf 20% lengur að gera allt sem við gerum áætlun um þá bætum við, næst þegar við gerum áætlun, 20% við í tíma eða peningum o.s.frv. til að reyna að vera nákvæm. Að lokum finnum við kannski betri nákvæmnispunkt. Og vissulega, eins og er í þessari áætlun, eru kostnaðarviðmið allt frá mínus 30% upp í plús 75% í kostnað, það á væntanlega við í tíma dálítið líka, eftir því hvar verkefnið er í hönnunarferli. Það er meiri óvissa fyrr en seinna o.s.frv., en gott og blessað. En við getum líka samt orðið betri í því framar í ferlinu með því að læra af reynslunni. Mér finnst við einmitt ekki hafa verið rosalega góð að læra af reynslunni í bætingu á áætlanagerð, a.m.k. þann tíma sem ég hef verið hérna.