154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Íslensk stjórnvöld fordæmdu harkalega hryðjuverkaárás Hamas-liða á Ísrael um liðna helgi. Árásir þar sem saklausum borgurum var slátrað í hundraðatali, ungmennum sem voru á skemmtun til stuðnings friði, þar sem konur og börn voru myrt á heimilum sínum og numin á brott. Vina- og nágrannaþjóðir okkar fordæmdu verknaðinn sömuleiðis. Forseti framkvæmdastjórnar ESB kallaði árásina kaldrifjuð stríðsverk sem endurspegluðu forna illsku. Evrópa stæði með Ísrael. Hæstv. utanríkisráðherra undirstrikaði að við þyrftum að rjúfa þennan vítahring ofbeldis. Ísland tók sömuleiðis undir yfirlýsingu ESB-þjóða í mannréttindaráðinu þar sem hryðjuverk voru fordæmd.

Stjórnvöld hafa um leið lagt áherslu á að réttur Ísraels til að verja borgara sína sé ótvíræður en að gæta þurfi að alþjóðalögum við gagnaðgerðir. Í þessu ástandi eru saklausir borgarar, þ.m.t. konur og börn, iðulega meginfórnarlömbin.

Þótt aðstæður séu um margt flóknar fyrir botni Miðjarðarhafs þykir manni ekki flókið að fordæma hryðjuverk, viðurstyggilega glæpi gagnvart saklausu fólki. Það hefur því verið ónotalegt að hlusta á raddir sem hafa tekið undir gagnrýni á hryðjuverkin með semingi, í það minnsta látið fylgja með nokkur „en“. Aðrir hafa talið upp ýmis „hvað með“-dæmi í þessu samhengi.

Í þessu hef ég m.a. staldrað við orðalagið um að ekkert gerist í tómarúmi. Það er auðvitað laukrétt. Við sem höfum starfað við sakamál þekkjum það að fáir glæpir og ofbeldisverk spretta af engu. Þar býr oft að baki mikill harmleikur, oft langvarandi, en þegar við lýsum yfir vanþóknun okkar á einhverju sem misbýður grunngildum okkar, misbýður siðferðiskennd okkar og sendum fórnarlömbum um leið samúðar- og stuðningskveðjur, eru „en“ og „hvað með“ bara mjög óviðeigandi.