154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ísland er framarlega á heimsvísu í kynjajafnréttismálum en það er bakslag í mannréttindabaráttunni. Mannúðin er á undanhaldi, harkan er að aukast. Að minnsta kosti 40% kvenna verða fyrir kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi á lífsleiðinni. Atvinnutekjur kvenna eru enn um 21% lægri en karla. Sjöttu hverri stúlku í tíunda bekk grunnskóla hefur verið nauðgað af jafnaldra. Við hér á hinu háa Alþingi tökumst á um málin alla daga og ég verð svo hugsi yfir því orðfæri sem á sér stað í samfélaginu og hversu gríðarlegur munur er á því hvernig er talað um fólk í okkar samfélagi, hvort heldur eru kjörnir fulltrúar eða bara hver sem er, hversu mikill munur er á orðfærinu þegar um er að ræða karla og svo öll kyn. Vísað er til þingkvenna, kvenráðherra, áberandi kvenna í samfélaginu með óviðeigandi, kynferðislegum, niðrandi athugasemdum. Karlar verða ekkert síður fyrir gagnrýni og það er nú kannski bara viðeigandi að vísa hér í fráfarandi hæstv. fjármálaráðherra, það stendur mikill styr um hann. Ég hef engan heyrt vitna til kynferðis hans eða kynfæra í þeirri gagnrýni, af því að við erum að gagnrýna málefnin og fyrir hvað fólk stendur. En það að konur, trans fólk og aðrir einstaklingar í okkar samfélagi sem fæðast ekki með kynfærin utanáliggjandi (Forseti hringir.) þurfi stöðugt að takast á við ómálefnalega gagnrýni sökum kyns er óboðlegt.