Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Vanhæf ríkisstjórn. Vanhæf ríkisstjórn. Já, slagorðið vanhæf ríkisstjórn, sem ég og fjöldi fólks sem vorum að berja búsáhöld hér fyrir utan vegna bankahrunsins, er enn skýrt í minningu minni. Nú, 15 árum eftir bankahrunið, er enn ein vanhæf ríkisstjórn við völd, upptekin við að klúðra bankasölu og koma ungu, veiku, öldruðu fólki á vonarvöl vonleysis og eymdar. Unga fólkið okkar er að tapa húseign sinni vegna á annan tugs hækkana á stýrivöxtum með tilheyrandi tvöfaldri hækkun á afborgunum sem er ekkert annað en grófur forsendubrestur í formi fjárhagslegs ofbeldis. Hvað eiga margir eftir að missa innborganir sínar í heimilin og þá einnig allan séreignarsparnaðinn sem það hefur sett í eigið húsnæði? Ríkisstjórnin hefur ekki leyst á nokkurn hátt vanda hjá því unga fólki þar sem greiðslubyrðin á húsnæðislánum hefur tvöfaldast. Vanhæf ríkisstjórn, já, vanhæf ríkisstjórn sem lætur það einnig viðgangast að aldrað fólk, fatlað fólk, veikt fólk, lágtekjufólk á ekki fyrir mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum.
Eins og ég hef ítrekað hér í ræðustól þá er það með ólíkindum hvernig núverandi ríkisstjórn hefur komið fram við fatlað fólk. Fyrir rúmlega ári síðan, þann 8. júní 2022, skilaði nefnd á vegum forsætisráðuneytisins, sem falið var að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðins fólks með geðrænan vanda, skýrslu sinni. Nefndin lagði til að rannsókn myndi fara fram samkvæmt fyrirmælum laga nr. 68/2011, um rannsóknarnefndir. Slíkt fyrirkomulag gæfi rannsóknarnefnd sjálfstæði og styrkar rannsóknarheimildir og væri einnig í samræmi við þann vilja Alþingis að almenn lög giltu almennt um slíkar rannsóknir. Ég hef því óskað eftir því í velferðarnefnd að undirbúa að leggja fram þingsályktunartillögu um skipun rannsóknarnefndar til að rannsaka aðbúnað og meðferð fullorðins fatlaðs fólk með þroskahömlun og fullorðins fólks með geðrænan vanda, líkt og kallað var eftir í fyrrnefndri skýrslu, skýrslu um stöðu og meðferð fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda og hún á að ná til dagsins í dag. En þessi vanhæfa ríkisstjórn á að segja af sér.