154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. „Ég er vettvangur glæps. Málsnúmer 007-2021-062416. Það er ég. Trúverðug í öllum skýrslutökum og viðtölum en of lyfjuð á meðan brotinu stóð til að geta lýst því hvernig ég fékk alla áverkana. Ég fæ ekki að segja sjálf frá því fyrir rétti sem kom fyrir mig, ekki að leggja fram gögn sem hrekja framburð mannsins sem braut á mér. Ég fæ ekki að sjá hans framburð fyrr en 721 degi eftir að ég kærði, og þá bara af því að málið var fellt niður. Þurfti hann að færa sönnur fyrir því sem hann sagði? Nei. Fæ ég tækifæri til að leggja fram gögn til að styðja minn vitnisburð? Nei. Ég er bara vettvangur. Afmennskuð. Með engan málsvara innan kerfisins.

Í niðurfellingarbréfinu segir: „Saga er ekki nægilega skýr svo hægt sé að draga ályktanir um tilkomu áverkanna og ekki hafa verið færðar sönnur á að kærði hafi beitt kæranda ofbeldi eða ólögmætri nauðung.“ Þegar ég kom á Neyðarmóttökuna var því trúað að ég hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi og byrlun. Ekki í réttarkerfinu. Af því hann sagðist ekki hafa brotið á mér. Og ég fékk ekki tækifæri til að leggja fram sannanir til að hrekja orð hans. Þetta er það sem kallað er orð gegn orði.“

Þetta, með leyfi forseta, var ömurleg upplifun brotaþola af tveggja ára vegferð í gegnum íslenskt réttarkerfi.