kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Forseti. Ég kem hingað til að varpa fram einni spurningu til hæstv. dómsmálaráðherra. Hún varðar ákvæði þessa frumvarps sem er rökstutt með þeim hætti að Bálfararfélag Íslands hafi verið óvirkt frá árinu 1964. Nú eru lögin frá árinu 1993 og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra annars vegar hvort henni finnist raunverulega eðlilegt að fella þetta ákvæði brott á þessum forsendum þegar, eftir því sem ég best veit, það liggur enn inni umsókn hjá ráðuneytinu um skráningu þessa félags og endurskráningu og endurlífgun, og sömuleiðis í ljósi þess að þetta félag hefur, samkvæmt frumvarpinu, verið hætt störfum áður en þessi lög voru sett. Samt hefur þótt tilefni til þess að tilgreina það í þessum lögum sem voru sett árið 1993. Hvort þetta skjóti ekki skökku við.