154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

316. mál
[15:50]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Dómsmálaráðherra kannast ekki við að það liggi umsókn inni í ráðuneytinu varðandi þetta tiltekna félag. Ég vil hins vegar fá að taka það fram að í umsögnum um málið sem borist hafa frá félagi er heitir Tré lífsins, þá væri hið nýstofnaða félag ekki nákvæmlega hið sama og eldra félag — þau eru búin að stofna félag er heitir Bálfarafélag Íslands til að styðja við stofnun óháðs athafnarýmis og bálstofu Trés lífsins í Garðabæ — og að Bálfararfélag Íslands, sem vísað er til í lögunum, hafi verið lagt niður. Þannig að það má kannski vísa til þess að þarna sé um að ræða — já, ég læt þetta svar duga í bili.