kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu og ræðuna sem fylgir þessu frumvarpi. En eins og hæstv. ráðherra kom inn á hefur þetta verið lagt nokkrum sinnum fyrir og það er nú kannski vegna þessara spurninga sem vaktar voru upp í andsvari sem frumvarpið hefur ekki enn hlotið brautargengi hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd.
En mig langar líka að koma því hér á framfæri til hæstv. ráðherra og hennar fólks að þessi lagabálkur sem hér um ræðir þarf á mikilli endurskoðun að halda og langt umfram það sem getið er í þessu frumvarpi. Ég held að enginn hafi neitt á móti 2. gr. frumvarpsins. 1. gr., að fella þarna brott 3. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna, er það sem hefur flækst svolítið fyrir okkur því að það hafa aðilar komið á fund nefndarinnar og haldið því fram að þeir séu að endurstofna eða endurvekja þetta félag.
Stóra málið er kannski það að við erum hérna að fjalla um að mínu viti mjög mikilvægt mál þegar kemur að kirkjugörðum, greftrun og líkbrennslu. En þetta er kannski mál sem hefur í gegnum tíðina ekki fengið neitt rosalega mikið pólitískt rými til að ræða. Fólk finnst almennt ekkert mjög gaman að ræða um dauðann og kirkjugarða, nema þá kannski þeim þingmanni sem hér stendur sem virðist hafa einstaklega mikinn áhuga á því og hefur lagt fram nokkur þingmál er því tengjast, m.a. þingmál sem varðar einmitt breytingu á þessum lögum og lýtur að því að gefa dreifingu ösku frjálsa. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þeim efnum, þ.e. að fara í gagngera endurskoðun á þeim lagabálki sem hér um ræðir.
Ég hef sérstaklega lagt hér fram frumvarp er varðar það að gefa dreifingu ösku frjálsa eða færa okkur alla vega nær því sem þekkist annars staðar. Eins og ég hef oft sagt þegar ég hef flutt það mál og fjallað um það mál víða — því að það er ótrúlegt að þó að þessi málefni dauðans og kirkjugarða fái kannski ekki mikla athygli hér í þingsal þá er það nú þannig að ég fæ iðulega mikla athygli þegar ég hef lagt þetta mál fram. Bæði hafa fjölmiðlamenn mikinn áhuga á því en ekki síst einstaklingar sem hafa samband við mig og segja frá alls konar vandkvæðum sem þeir upplifa í tengslum við kirkjugarða eða í tengslum við það að hafa óskað eftir leyfi til dreifingar ösku.
Þetta er oft ofboðslega persónulegar sögur og hjartnæmar. Ég hef sagt að við eigum auðvitað að virða hinstu ósk fólks og leyfa fólki að hafa frelsið út fyrir gröf og dauða, eins og ég hef orðað það. Þannig að við í hv. allsherjar- og menntamálanefnd munum að sjálfsögðu fjalla um þetta frumvarp hér og fá umsagnir eins og venja er. En ég vil líka bara hvetja ráðherra og hennar fólk til að skoða frekari endurskoðun á þessum lagabálki.