154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

316. mál
[16:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Ég bara ítreka það sem ég sagði áðan, ég sé ekkert stórkostlegt vandamál við það sem hv. þingmaður lýsir hér. Ef hann er að vísa í það að í þessu frumvarpi er verið að tala um að færa ábyrgð á reikningshaldi kirkjugarðasjóðs, sem í dag er hjá skrifstofu biskups, að reikningshaldið verði þá á ábyrgð kirkjugarðaráðs en ekki inni á skrifstofu biskups, þá hef ég ekki séð eða heyrt nein andmæli úr þeirri átt, þ.e. frá biskupi eða þjóðkirkjunni, þegar þetta frumvarp hefur verið lagt fram sem hefur verið gert nokkrum sinnum. Ef ég hef skilið það rétt er það meira að segja jafnvel að þeirra beiðni, þannig að þau vilji svolítið aðskilja það. Ég sé í sjálfu sér ekki neitt stórkostlegt vandamál við þetta fyrirkomulag en ég heyri hvað hv. þingmaður segir, ég heyri að hann sér hér vandamál en ég bara deili ekki þeirri sýn.