154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

viðurkenning á þjóðarmorði á Armenum.

140. mál
[16:03]
Horfa

Flm. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um viðurkenningu á þjóðarmorði á Armenum. Ásamt mér flytja 16 hv. þingmenn þessa tillögu og hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að það viðurkenni þjóðarmorð á Armenum árin 1915–1917 og virði minningu fórnarlamba þess glæps gegn mannkyni.“

Tillaga þessi hefur verið flutt tvisvar sinnum fyrr hér á hinu háa Alþingi, í fyrsta sinn á 140. löggjafarþingi sem haldið var 2011–2012 og var þá fyrsti flutningsmaður Margrét Tryggvadóttir, þáverandi hv. þingkona. Tillagan var svo flutt af mér og fleirum á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki endanlega afgreiðslu.

Þjóðarmorð telst til alþjóðaglæpa og er kerfisbundin útrýming þjóðar eða þjóðarbrots. Það er skilgreint sem refsiverður verknaður, framinn í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúarflokki með því að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi, skaða þá líkamlega eða andlega, þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að eyðingu hópsins eða hluta hans, beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum eða flytja börn með valdi úr hópnum. Árið 1948 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að fordæma skyldi þjóðarmorð og refsa þeim sem það fremja.

Það þarf kannski ekki að hafa mörg orð um það, hæstv. forseti, að þó að þjóðarmorð hafi verið fordæmd á alþjóðlegum vettvangi á síðustu árum og áratugum hefur sjaldnast verið refsað fyrir þau. Fólk þarf ekki annað en að fletta upp á netinu og sjá þar þann fjölda meintra þjóðarmorða sem framin hafa verið bara á síðustu 100–120 árum hér á jörðinni til að sjá um hvað er að tefla. Það er ástæða til að taka það fram að oft er talað um að þjóðarmorð Þjóðverja á Herero- og Namaqua-þjóðbálknum í Namibíu árin 1904–1905 teljist til fyrstu þjóðarmorða 20. aldarinnar.

En aftur að því efni sem hér er til umfjöllunar. Undir lok 19. aldar stóð hið fyrrum glæsta Ottómanaveldi höllum fæti. Armenar innan þess höfðu lengi þráð sjálfsstjórn og margir töldu að þeir gætu sóst eftir sjálfstæði eftir því sem veldi Ottómana veiktist frekar. Árið 1894 gerðu Armenar uppreisn gegn Tyrkjum sem barin var niður af mikilli hörku og í kjölfarið varð útskúfun hinna kristnu Armena að meðvitaðri pólitískri stefnu. Á árunum 1894–1897 voru tugþúsundir Armena teknar af lífi vegna þjóðernis síns og trúarskoðana. Tölum ber ekki saman; hinar tyrknesku segja að um 20–30 þúsund manns hafi látist en hinar armensku að nær 300 þúsund manns hafi týnt lífi. Þetta var þó aðeins forleikurinn.

Ungtyrkir náðu völdum í því sem nú heitir Tyrkland árið 1908, m.a. með stuðningi Armena enda börðust þeir saman gegn breyttum stjórnarháttum. Fljótlega klofnaði þó hópurinn og sá hluti sem vildi að Ottómanaveldið yrði aðeins fyrir Tyrki og múslima náði völdum. Það hafði þær afleiðingar að stjórnarstefnan varð að útrýma skyldi minnihlutahópum sem stæðu í vegi fyrir altyrknesku ríki. Í fyrri heimsstyrjöldinni, árin 1914–1918, gafst tækifæri til aðgerða sem miðuðu að því að fækka þeim þjóðum og þjóðarbrotum sem ekki voru tyrknesk innan landamæra hins nýja ríkis, eða ríkisins sem var að fæðast öllu heldur.

Opinberlega byggðust aðgerðirnar á brottflutningi hinna óæskilegu hópa til nýrra héraða, ekki síst Armena sem ekki voru tilbúnir til að snúa baki við trú sinni og menningu, en hið raunverulega markmið var að útrýma sem flestum. Aðgerðirnar fólu í sér pyndingar og aftökur, auk þess sem fólk var rekið fótgangandi langar vegalengdir, jafnvel um 1.000 km, með þeim afleiðingum að margir létust eða hlutu örkuml. Algengt var að aldraðir og veikir væru drepnir á leiðinni því að þeir hægðu á hópnum í þessum miklu fólksflutningum og lík lágu meðfram vegum Anatólíu mánuðum saman. Þeim sem lifðu af var komið fyrir í stórum útrýmingarbúðum. Fáir sluppu lifandi þaðan. Fólk var skilið eftir matar- og vatnslaust í eyðimörkinni. Ekki er vitað með vissu hve mörg týndu lífi en talið er að fjöldi þeirra sé á bilinu 600.000–1.500.000 manna. Þetta gerðist á árunum 1915–1917.

Þrátt fyrir að þessir atburðir uppfylli skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 á þjóðarmorði og hafi verið kallaðir fyrsta þjóðarmorð 20. aldar, sem ég vil reyndar kalla annað, hefur það reynst Armenum erfitt að öðlast viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á þeim sem slíkum. Vegur þar þyngst að tyrknesk stjórnvöld hafa ekki viðurkennt atburðina sem þjóðarmorð og enn er viðvarandi ágreiningur á milli Tyrkja og Armena, auk þess sem margar þjóðir hafa ekki viljað styggja tyrknesk stjórnvöld vegna þessa máls af pólitískum ástæðum sem ég ætla ekki að fara út í hér. Eigi að síður hafa tæplega 30 þjóðir samþykkt ályktanir þar sem viðurkennt er að þjóðarmorð á Armenum hafi átt sér stað á árunum 1915–1917 og það sama gildir um öll 50 ríki Bandaríkjanna, Evrópuþingið og Evrópuráðið. Þá hefur þessum atburðum verið lýst sem þjóðarmorði í skýrslum frá Sameinuðu þjóðunum.

Það er ákaflega mikilvægt að þjóðir heims og heimsbyggðin viðurkenni og horfist í augu við þau voðaverk sem framin hafa verið og þessi voðaverk sem framin voru á armensku þjóðinni og eru þjóðarmorð. Þó að langt sé um liðið er þetta glæpur gegn mannkyni og þar með glæpur gegn okkur öllum. Þau voðaverk sem framin verða við allt hernaðarbrölt heimsins í nútíð og framtíð byggjast á því sem áður hefur verið gert. Þau byggjast líka á því að gerendurnir geti treyst á refsileysi. Það er kannski það alvarlegasta í þessari stöðu.

Við sem flytjum þessa þingsályktunartillögu erum þeirrar skoðunar að það sé löngu tímabært að íslensk stjórn, að Alþingi Íslendinga viðurkenni að þjóðarmorð var framið á Armenum á árunum 1915–1917 og að við virðum þannig minningu fórnarlambanna, höldum minningu þeirra á lofti og tölum um þjóðarmorðið sem glæp gegn mannkyni.

Hér í texta þingsályktunartillögunnar er listi yfir ríki sem hafa viðurkennt þjóðarmorðið gegn Armenum og þingmenn geta kynnt sér þann lista.

Ég held að mál sem þetta og opinber viðurkenning þjóðþings á því sem gerðist, þótt hafi verið fyrir meira en 100 árum, sé mikilvæg. Það er mikilvægt í samhengi sögunnar og það er mikilvægt í ljósi sögunnar. Það er fyrst og fremst mikilvægt að ræna fólk ekki sögu sinni og viðurkenna það sem fyrir það kom. Þess vegna eru opinberar viðurkenningar mikilvægar og verðmætar fyrir sögu þjóða, í þessu tilviki sögu armensku þjóðarinnar. Það er ekki síður mikilvægt að þjóðirnar eða stjórnvöldin sem sökuð eru um að hafa framið þjóðarmorð komi hreint fram, geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni hvað gerðist. Það skiptir máli. Það skiptir máli fyrir sjálfsmynd þjóða. Það skiptir máli svo að sagan sé haldin í heiðri og að atburðir, sérstaklega hörmulegir sem þessir, sem hafa sett mark sitt á kynslóð eftir kynslóð af Armenum, séu viðurkenndir og þeim sé haldið á lofti. Það er í raun hluti af sjálfsmynd þjóða að geta rætt um það sem fyrir þær kom.

Ég get fullyrt eftir veru mína í Kákasuslöndunum, þótt svolítið langt sé um liðið síðan, að þessir atburðir eru sannarlega hluti af sjálfsmynd og sögu Armena og eitthvað sem lifir með þeim alla daga. Það er því tímabært að Alþingi Íslendinga taki þetta skref. Ég vona að okkur auðnist að afgreiða þingsályktunartillöguna á yfirstandandi þingi og að hún fái stuðning meiri hluta þingmanna hér á hinu háa Alþingi og þar með séum við að taka mikilvægt skref til þess að horfast í augu við voðaverk fortíðarinnar en um leið að senda mjög mikilvæg skilaboð inn í samtímann um það að við sjáum hvað er að gerast, fólki verður ekki gleymt. Hörmungarnar eiga að fá umfjöllun og viðurkenningu og það á auðvitað að draga þau til ábyrgðar sem hafa skipulagt og framið slíka glæpi gegn mannkyni sem þjóðarmorð eru. Þau mega ekki vera refsilaus og þess vegna er þessi tillaga flutt.