154. löggjafarþing — 13. fundur,  11. okt. 2023.

viðurkenning á þjóðarmorði á Armenum.

140. mál
[16:14]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og fyrsta flutningsmanni þessarar þingsályktunartillögu, um viðurkenningu á þjóðarmorði á Armenum, fyrir prýðilega framsögu og fyrir það að draga fram hversu mikilvægt það er að við viðurkennum. Ég er á þessu máli og hef reyndar verið á þessu máli áður, en þegar ég var að fara yfir þau mál sem hafa verið lögð fyrir þetta þing kom mér á óvart að sjá að við höfum ekki í gegnum tíðina náð að afgreiða þetta. Ég hef ekki skynjað pólitíska andstöðu hverrar ríkisstjórnar fyrir sig sem maður er búinn að upplifa hér á þingi. Ég kem hingað upp einfaldlega til að segja — og við sjáum hv. formann utanríkismálanefndar hér, sem ég sé að er líka á málinu — að ég held að við eigum að einsetja okkur það að þetta mál verði klárað á þessu þingi og helst fyrir jól. Það væri mikill sómi að því, að við héldumst þar í hendur við ekki síst þau lýðræðislönd sem við sjáum að hafa nú þegar viðurkennt þjóðarmorð á Armenum. Þetta er gríðarlega mikilvægt að við viðurkennum og einmitt, eins og hv. þingmaður orðaði miklu betur, að við horfumst í augu við söguna, lærum af henni, sama hversu miskunnarlaus hún er, líka til að geta farið inn í framtíðina með lærdóminn líka að vopni og geta þá brugðist bæði fyrr við og af festu, sérstaklega þegar mannréttindi og lýðræði eru í húfi. En ég vildi einfaldlega koma hingað upp til að þakka fyrir þessa fínu framsögu um leið og ég lýsi því yfir að ég mun einbeita mér að því að við tökum þetta mál fyrir, enda verður að segjast eins og er að það er ekki mikið af málum sem eru að koma frá hæstv. ríkisstjórn.