154. löggjafarþing — 13. fundur, 11. okt. 2023.
viðurkenning á þjóðarmorði á Armenum.
140. mál
Hæstv. forseti. Ég kem hérna upp snögglega til að þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir hennar viðbrögð og auðvitað meðflutning. Ég vona innilega að okkur takist að afgreiða þessa þingsályktunartillögu í vetur og hún hljóti góða umfjöllun í hv. utanríkismálanefnd og það verði samstaða hér á þingi, vonandi þvert á flokka, um að hún verði afgreidd.