afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegur forseti. Ráðherraskák hefur oft verið tefld og þó að ráðherrar hafi gert einhvern smá afleik þá hafa þeir nú talið sig vinna í lokin, vinna taflborðið og ekki þurft að segja af sér. En nú varð breyting. Ráðherra stígur fram og ákveður að axla ábyrgð og segja af sér sem hæstv. fjármálaráðherra, en þá tekur allt í einu við ráðherrakapall. Nú eru allir að spá: Bíddu, hvaða ráðuneyti tekur hann við næst? Er það eðlilegt? Ég held ekki. Ég held að allir væru maður að meiri og sérstaklega hæstv. fjármálaráðherra ef hann tæki sig til og segði að hann ætti ekki að vera í ráðherrastól lengur og lyki þar með þessum þessum ráðherrakapli. Sýna ábyrgð.