154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[10:37]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Okkur í Sjálfstæðisflokknum og ég held bara ríkisstjórnarflokkunum líður alveg ágætlega þessa dagana. (ÞorbG: Það er ágætt.) Við erum bara mjög sátt við ákvörðun hæstv. fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins að bregðast við áliti umboðsmanns Alþingis með þeim hætti sem hann gerir. Hann sýnir þar virðingu fyrir þessu áliti þó að það sé vissulega umdeilt eins og hefur komið fram af okkar hálfu. En það er alveg með ólíkindum að fylgjast hér með stjórnarandstöðunni, vanlíðan þeirra í þessu máli sem ber þess merki hvað málefnagrundvöllur þessara flokka er grunnur. Það verða breytingar gerðar á þessari ríkisstjórn. Það liggur alveg fyrir. Það er ekki sama taugaveiklunin í því og var í tíð vinstri stjórnarinnar, eins og við munum eftir sem vorum hér á þingi á þeim tíma. (Forseti hringir.) Það lá á öllum hlutum og hún losaði sig við marga ráðherra á tímabilinu (Forseti hringir.) vegna þeirrar óeiningar sem var á þeim bæ. (Gripið fram í.) Við vöndum skrefin í þessu eins og öðru sem við erum að gera.