154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[10:38]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Það er nú fyrir öllu að Sjálfstæðismönnum líði vel. Mér líður ekkert illa, mér finnst þetta bara að vera vandræðalegt. Mér finnst vandræðalegt hvað pólitík Sjálfstæðismanna er óþroskuð og einhvern veginn ótrúlega skammsýn. Ég skil ekki alveg hvað við erum að gera með því að bjóða upp á fráfarandi fjármálaráðherra hérna í óundirbúnum fyrirspurnum. Hvað á ég að spyrja hæstv. ráðherra út í? Út í fjármál ríkisins? Út í verðbólguna? Út í verkföllin sem eru að fara að koma? Er hann að fara að svara því? Hann á að vera hættur í þessu embætti. Af hverju er hann hérna? Hverju er hann að fara að svara mér? Hvað er hann að fara að tala um? Þetta er svo óþroskað. Þetta er svo skammsýnt og asnalegt og þetta grefur undan trausti fólks á lýðræðinu.

Mér líður ekkert illa en mér finnst þetta vera svo ótrúlega óheiðarlegt þegar ráðherra segir af sér (Forseti hringir.) út af því að hann er búinn að brjóta hér lög. Þótt hann sé ósammála því þá á hann bara stíga burt strax og (Forseti hringir.) það á einhver annar að koma og taka við embættinu og mæta í þingsal og svara fyrir fjármál ríkisins. (BLG: Heyr, heyr.)