154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[10:41]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Já, fjármálaráðherra tók ábyrgð en ætlar samt sennilega að sitja áfram sem ráðherra eftir því sem við best vitum. Það sem mér finnst skipta máli — mér finnst þetta næstum því ekki skipta máli vegna þess að það eina sem á að skipta einhverju máli hérna er hvað gerist og hverju þetta breytir fyrir fólkið í landinu. Og ég held að þetta muni bara ekki breyta neinu. Ég held að þetta sé eitthvað sem breytir einhverju fyrir nokkra einstaklinga sem skipta hugsanlega um einhverja stóla. En hefur þetta einhver áhrif til góðs fyrir fólkið í landinu? Ég heldur ekki, því miður. Ef svo væri þá skipti það virkilega miklu máli. En þetta breytir eiginlega væntanlega ekki neinu. Það er það sem er það versta.