154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[10:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Fjármálaráðherra stígur til hliðar til að skapa frið um verkefni ráðuneytisins. En hvaða verkefni eru það? Eru það aðgerðir gegn verðbólgu eða því að greiðslubyrði húsnæðislána kemur til með að stökkbreytast hjá tugþúsundum heimila á næstunni? (Gripið fram í.)Þetta er ekki það sem er verið að standa vörð um. Sú aðgerðaáætlun — ja, ef hún væri til þá er hún einhvers konar leyniplan, því ekki hefur hún birst hér í þingsal.

Nei, þetta er friður um áframhaldandi sölu ríkiseigna. Þetta er friður um það að næsti ráðherra Sjálfstæðisflokksins geti haldið áfram því verki sem Bjarni Benediktsson hóf og komið eignum í góðar hendur. Enginn nema Sjálfstæðisflokkurinn hefði getað treyst Bjarna Benediktssyni fyrir því að selja ríkiseignir en engir aðrir en núverandi ríkisstjórnarflokkar gætu treyst Sjálfstæðisflokknum fyrir þessu verkefni. Þjóðin gerir það ekki. (Forseti hringir.) Svo verð ég að benda forseta á, fyrst við erum hér með ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum sem er að hrökklast úr embætti, (Forseti hringir.) að í dag er fimmtudagur en afgangadagurinn í mötuneytinu er á föstudögum.