afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil nú taka undir orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um það hvort ráðherra hefði verið hér eða ekki verið. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson spurði hér í gær hvort hæstv. ráðherra yrði hér til svara. Forseti sagði já. Við það gerði enginn athugasemd. Það hefði verið hægt að gera athugasemd og segja: Við óskum ekki eftir því af því að við teljum hann umboðslausan, en það gerðu hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar ekki. (Gripið fram í.)
Virðulegi forseti. Það var spurt um þetta í gær, hv. þingmaður, og það var hægt að bregðast við þegar svörin lágu fyrir hjá hæstv. forseta, sem þau gerðu í kjölfar þess að hv. þingmaður spurði. Ég verð líka að segja sem fyrrverandi formaður fjárlaganefndar að mér finnst hér talað niður til fjárlaganefndar. Hún er með málið. Telji hún þörf á að bregðast við, hvort sem heldur er áformaðri sölu Íslandsbanka eða hvað annað, þá gerir hún það. Ráðherra er ekki með málið. Alþingi er með málið. Virðum það, kæra samstarfsfólk. Ekki gera lítið úr vinnunni okkar.