afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Hér tala stjórnarandstöðuþingmenn um eitthvert munaðarlaust fjárlagafrumvarp. Það er þingræði í þessu landi og fjárlagafrumvarpið er bara í ferli. Ég treysti að sjálfsögðu ríkisstjórnarflokkunum og fjárlaganefnd til að klára það. Mér finnst þetta orðið ansi mikið leikrit, ég verð að viðurkenna það, og kemur mér verulega á óvart. Gefum ráðherra og ráðherrum hér færi á því að svara þeim spurningum sem fram undan eru. Ég vænti þess að þau munu fagna því og svara þeim skýrt og greinilega.