154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

staða hjúkrunarheimila í landinu.

[11:06]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er sama hvar við þingmenn berum niður. Ég var á haustfundi Landsvirkjunar í gær. Það er verið að kalla eftir aðgerðum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Síðan stöndum við uppi núna með algjöran hringlandahátt, stjórnleysi í ríkisstjórn Íslands.

Það sem ég vil spyrja um og beina sjónum ráðherrans að er að bara í Reykjavík vantar á næstu 15 árum 717 hjúkrunarrými. Það eru u.þ.b. 80 rými á hverju hjúkrunarheimili. Ég vil ítreka mína spurningu til hæstv. ráðherra: Treystir ráðherrann sér til þess að nýta núna það ástand sem er m.a. á byggingamarkaði? Treystir hann sér til að gera þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi aðila á sviði rekstrar innan heilbrigðiskerfisins til að þeir geti síðan farið í bankann og þeir geti gert samninga við verktaka og fleiri til þess að ýta þessu verkefni áfram? Ég sé þess ekki stað í fjárlagafrumvarpinu að það sé verið að taka stór skref strax. Við þurfum stór skref núna, ekki einhver hænuskref eftir fimm ár (Forseti hringir.) eða átta ár eða tíu ár. Tölurnar ýta okkur út í það (Forseti hringir.) að taka stór skref við stækkun og fjölgun hjúkrunarrýma núna.