tíðni og orsakir sjálfsvíga á Íslandi.
Virðulegur forseti. Á Íslandi deyja að meðaltali 40 einstaklingar vegna sjálfsvíga á ári hverju. Um 1.000–1.500 sjálfsvígstilraunir eru gerðar á hverju ári eða um fjórar tilraunir á dag. Hvert sjálfsvíg snertir á beinan hátt 135 einstaklinga. Það þýðir að árlega verða um 5.000 einstaklingar fyrir beinum áhrifum sjálfsvíga og eru því í meiri sjálfsvígshættu en ella. Algengasta dánarorsök ungra karla var bílslys en síðustu árin hefur sjálfsvíg verið langalgengasta dánarorsök ungra karlmanna. Sjálfsvíg er fjármagnað með 2,5% á við umferðaröryggi. Hver er kostnaðurinn við sjálfsvíg á Íslandi? Skelfilegt að spyrja að því. Hver er kostnaður við sjálfsvíg á Íslandi? Kostnaður fellur ýmist á ríki, vinnustaði eða einstaklinga. Hvað gætu tölurnar sagt okkur um kostnað á hvert sjálfsvíg í aldursflokkunum 15–24 ára? 433 milljónir eða 17,3 milljarðar á ári, sagði Tómas Kristjánsson, doktor í sálfræði og fræðslustjóri Píeta samtakanna á miðvikudaginn í síðustu viku á opnum fundi í Iðnó. Sparnaður ríkisins af einu sjálfsvígi gæti fjármagnað rekstur Píeta samtakanna að fullu í þrjú ár. Það vantar rannsóknarmiðstöð sjálfsvíga og sjálfsvígsforvarna. Nemendur í 9. bekk sem eru með sjálfsvígshugsanir eru 23,4%. 7,5% hafa reynt sjálfsvíg. Hverjar eru raunverulegar ástæður þess að fólk reynir sjálfsvíg? Áfallasaga, einangrun, geðrænn vandi, örorka, heilsufarsvandi, atvinnuaðstaða, fjárhagur og að hafa misst úr sjálfsvígi. Það koma 700 nýir skjólstæðingar til Píeta samtakanna á ári hverju, tveir til þrír á dag. Við sem þjóð höfum ekki efni á aðgerðaleysi. Við verðum að gera betur og það miklu betur. Við setjum tugi eða hundruð milljóna til ýmissa forvarnaverkefna en bara 40 milljónir til sjálfsvígsforvarna. Það deyja 40 á ári sem gerir 1 milljón á hvert andlát sjálfsvíga. Hvað ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að gera í þessu máli og ætlar hann að auka fjármagn til að koma í veg fyrir sjálfsvíg?