tíðni og orsakir sjálfsvíga á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Jú, það er mjög gott og það væri mjög gott ef það væri komið á rannsóknamiðstöð sjálfsvíga og sjálfsvígsforvarna. En ef við horfum aðeins á fjárlögin þá erum við að fara að setja tvöfalt framlag til einkarekinna fjölmiðla, hálfan milljarð króna. Við erum að fara að hækka til fjölmiðla um nærri 700 milljónir, þeir eiga að fá 10,6% hækkun, en við setjum 40 milljónir til Píeta-samtakanna. Er þetta ekki vitlaust gefið? Er ekki eitthvað undarlegt við það að við teljum að við þurfum að setja meira til einkarekinna fjölmiðla? Ég var eini þingmaðurinn sem mætti á þennan fund. Öllum var boðið. Það var einn fjölmiðill sem sagði frá þessum fundi. Er þetta ekki sjálfsagt mál? Og til dæmis Íslandsbankasalan, 52 milljarðar, 1% af þeirri sölu myndi duga til þess að gera stóra hluti. Væri ekki frábært að við myndum sjá til þess?