154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

aðgerðir gegn ópíóíðafíkn.

[11:22]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svarið. Það er gott að heyra viðbrögðin. Það er gott að heyra skilninginn á því hversu mikilvæg tengsl fólks eru því að eins og hæstv. ráðherra kemur inn á þá erum við öll manneskjur og fólk þráir tengsl við annað fólk. Einangrun er ein alvarlegasta afleiðing fíknisjúkdóma. Það er algjört lykilatriði að við ráðumst að þeim vanda líka. Á sama tíma verðum við líka að passa upp á að halda áfram því sem vel gengur og við megum þá ekki á sama tíma skera niður framlög til annarra úrræða, eins og SÁÁ og annarra meðferðarúrræða sem hafa verið að gefast býsna vel. En þau taka náttúrlega ekki á tengslavandanum.