Fátækt og samfélagslegur kostnaður, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Eins og ég segi, heilt yfir er þróunin í rétta átt. En hv. þingmaður bendir hér á ákveðna þætti sem er full ástæða til að skoða nánar. Ég vil segja hvað varðar dýptina sem hann kemur hér inn á í andsvari sínu að við höfum auðvitað séð breytingar á samsetningu samfélagsins og það er þannig samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar að innflytjendur búa oft við tíða, djúpa og langvarandi fátækt. Fjölskyldur einstæðra foreldra búa við tíða og langvarandi en ekki endilega mjög djúpa fátækt. Fátækt barna er oft langvarandi en ekki sérlega tíð eða djúp. Síðan er fólk á eftirlaunaaldri, sem ég nefndi hér áðan í öðru andsvari, þar sem við sjáum að þeim hefur fækkað mjög sem búa við fátækt, sem er gleðiefni, en þau sem eru fátæk búa við djúpa fátækt. Þannig að svar mitt við spurningu hv. þingmanns er að það er einmitt svo mikilvægt að við séum að ræða þetta út frá þessum ólíku hópum. Helst vildi maður ræða þetta út frá hverjum og einum en það er auðvitað flókið. (Forseti hringir.) En nákvæmlega þessi greining hjálpar okkur að draga úr fátækt á réttum stöðum þar sem hana er raunverulega að finna.