Fátækt og samfélagslegur kostnaður, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Ég held að ég neyðist til að endurtaka svar mitt áðan af því að mér fannst hv. þingmaður ekki alveg (Gripið fram í.) nema það, þar sem kemur fram að staðan á Íslandi er best samanborið við Norðurlöndin, og eins og ég er svo skýrt og klárt búin að segja í þessari umræðu: Það gerir það ekki að verkum að við eigum að láta staðar numið heldur eigum við einmitt að halda áfram. Þar er auðvitað margvísleg vinna í gangi. Ég fór áðan yfir vinnuna sem tengist svokölluðum NEET-hópi eða ungmennum sem eru utan skóla og utan vinnu. Við höfum verið að lækka heilbrigðiskostnað og forgangsraða þar börnum til að draga úr kostnaði þeirra við að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Fæðingarorlof hefur verið lengt sem er einn þáttur í því sem eykur fátækt barna. Það er vissulega mikilvægt að horfa til sveitarfélaganna líka. Við þurfum samstillt átak því þetta snýst líka um tómstundir en ekki síður skólamáltíðir sem er ein af þeim aðgerðum sem hefur verið nefnd sérstaklega til þess að draga úr fátækt barna.