154. löggjafarþing — 15. fundur,  16. okt. 2023.

breytingar á ríkisstjórn.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Á ríkisráðsfundi síðastliðinn laugardag urðu þær breytingar á ríkisstjórn að Bjarni Benediktsson tók við embætti utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við embætti fjármála- og efnahagsráðherra. Er þeim báðum óskað velfarnaðar í nýjum embættum.