154. löggjafarþing — 15. fundur,  16. okt. 2023.

barnabætur lágtekjufólks.

[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og vil byrja á því að vísa í það sem hann nefndi um þróun lágtekjumarka á undanförnum árum. Eins og kom fram í umræðunni hér fyrir helgi, sem ég held að sé ágætt að rifja upp í ljósi fyrirspurnar hv. þingmanns, er mikilvægt að rýna orsakir þessa og rýna þær orsakir sem kunna að vera í samsetningu samfélagsins, samsetningu fólks á vinnumarkaði, en eitt af því sem kemur fram í þeirri skýrslu er sú staða að hér hefur fjölgað innflytjendum sem almennt eru tekjulægri en innfæddir. Þetta finnst mér vera eitthvað sem við þurfum sérstaklega að taka til skoðunar því að við viljum tryggja hér áframhaldandi jafnaðarsamfélag. Ísland hefur verið samfélag þar sem tekjujöfnuður hefur verið hvað mestur og mér finnst mjög mikilvægt að þetta verði tekið til sérstakrar skoðunar. Þannig að þetta er eitt af því sem er í bígerð af minni hálfu í tengslum við eftirfylgni með þessari skýrslu.

Hv. þingmaður ræðir svo stöðu barnafjölskyldna og það er rétt að við gerðum kerfisbreytingar og seinni áfangi þeirra á að koma til framkvæmda á næsta ári. Við kynntum þessar kerfisbreytingar í tengslum við skammtímakjarasamninga á síðasta ári. Hins vegar er það svo, og ég get upplýst hv. þingmann um það, að við erum að ræða þessar breytingar, barnabótakerfið og annan stuðning við barnafjölskyldur, á vettvangi þjóðhagsráðs þar sem saman sitja aðilar vinnumarkaðar og sveitarfélaga, því að það er alveg ljóst að við þurfum að huga sérstaklega að barnafjölskyldum þegar við erum að ræða lífskjör almennings í breiðu samhengi í tengslum við kjarasamninga. Þar kemur barnabótakerfið sterkt inn að sjálfsögðu en það eru aðrir þættir sem þarf að ræða og ég nefni þar sérstaklega umönnunarbilið sem heldur hefur breikkað. Við erum því miður að sjá ungt fólk með börn bíða allt of lengi eftir leikskólaplássi hjá sveitarfélögum. Við þurfum að ræða það (Forseti hringir.) hvernig þetta bil verður brúað því að eins og komið hefur fram í þeim greiningum sem við höfum unnið á stöðu barnafjölskyldna er þetta (Forseti hringir.) eitt af því sem þar spilar inn í.