154. löggjafarþing — 15. fundur,  16. okt. 2023.

sala Íslandsbanka og ráðstöfun ríkiseigna.

[15:34]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er hárrétt sem hann hafði eftir mér, að ég hef sagt að það sé enn töluvert í land með það að unnt sé að taka ákvarðanir um áframhaldandi sölu. Það breytir því ekki að við í stjórnarflokkunum erum sammála um það markmið að halda áfram að selja hlut í Íslandsbanka, en það eru ákveðnir hlutir sem þurfa að liggja fyrir áður en hægt er að gera það.

Þetta álit umboðsmanns, sem ég tel mjög mikilvægt að við drögum lærdóm af, liggur nú fyrir. Það liggur líka fyrir að Fjármálaeftirlit Seðlabankans lauk skýrslu sinni um þátt Íslandsbanka en ætlaði einnig að skoða önnur fjármálafyrirtæki sem tóku þátt í útboðinu. Það er mikilvægt að því verði lokið. Síðan þarf að ræða hvaða ferli við viljum hafa á þessu, því að þegar þessi lög voru sett á sínum tíma var mikið lagt upp úr því að tryggja fagmennsku og þess vegna er stofnað til þessarar sérstöku stofnunar sem eigi að fara með eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Ég held að álit umboðsmanns sýni, eins og ég kom nú raunar að áðan, að þegar þessi löggjöf um ráðstöfun ríkiseigna lá fyrir þá skorti greinilega dýpri og betri rýni á því hvað kröfur stjórnsýslulaganna þýða í samhengi við löggjöfina um Bankasýsluna og sölu á hlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Af því að ég var nú að hlusta á formann Viðreisnar í gær, hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þá finnst mér blasa við að það þarf miklu ríkari lýðræðislega aðkomu að slíku ferli, því að hér er um að ræða sölu á almenningseign. Þó að við viljum að sjálfsögðu viðhalda fagmennsku þegar slíkar ákvarðanir eru teknar er gríðarlega mikilvægt að umboðið frá Alþingi sé miklu skýrara og það kom fram í upphaflegri yfirlýsingu okkar formanna stjórnarflokkanna. (Forseti hringir.) Aðkoma Alþingis þarf að vera miklu betur tryggð í svona ferli, þó að við séum að sjálfsögðu að reyna að tryggja fagmennsku um leið.