sala Íslandsbanka og ráðstöfun ríkiseigna.
Virðulegi forseti. Á tveimur mínútum var ekki að heyra neina sérstaka traustsyfirlýsingu í garð samstarfsflokksins, Sjálfstæðisflokksins, hvað varðar frekari eignasölu. En mig langar að benda á í þessu samhengi að það er gert ráð fyrir því í fjárlögum fyrir næsta ár að það komi um 50 milljarðar kr. inn í fjárreiður ríkisins fyrir eignarhlut í Íslandsbanka, þannig að við gerum ráð fyrir því að selja á næsta ári og svo aftur á þar næsta ári. Þýðir þessi nýja staða, sem birtist okkur núna í vandræðagangi ríkisstjórnarinnar um helgina og fyrir helgi, að við séum mögulega að fara að slá á frest því sem áformað var á næsta ári? Hæstv. fjármálaráðherra, sem nú er nýtekin við, talaði um að ella þyrfti að taka tugmilljarða lán fyrir ríkissjóð og við vitum ósköp vel að það borgar engin þjóð í löndunum í kringum okkur meira í vexti hlutfallslega heldur en Íslendingar. Skila þessir peningar sér í ríkissjóð á næsta ári eða ekki? Einföld spurning.