sala Íslandsbanka og ráðstöfun ríkiseigna.
Herra forseti. Ég hefði haldið að það væri okkar allra hagur og vilji, ekki síst eftir þau álit sem nú liggja fyrir frá ýmsum ólíkum aðilum, að til þessa verks verði vandað. Ég held að það sé yfirmarkmiðið hér. Ég er að segja það og fagna samtali við alla flokka á Alþingi um það. Ég held að það sé stóri lærdómurinn af þessu máli, að við viljum gera þetta faglega og við töldum okkur vissulega vera að gera það. En það verður líka að tryggja lýðræðisleg sjónarmið þegar um er að ræða sölu á almannaeigum. Sá árekstur kemur náttúrlega strax í ljós þegar ekki var vilji til þess að birta lista yfir kaupendur, sem fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra tók svo ákvörðun um að birta, vegna þess að það hljóta að vera almannahagsmunir að slíkar upplýsingar liggi fyrir. Það eru þessi álitamál sem við þurfum að ræða á vettvangi þingsins áður en unnt er að ljúka sölu á hlut.
Ég ætla ekki að segja til um hvort það tekst á næsta ári eða ekki, eins og hv. þingmaður spyr. Fyrir mér vakir það eitt (Forseti hringir.) að nú þarf virkilega að fara yfir þetta mál, draga af því lærdóm, gera þetta vel og tryggja samtal við alla flokka á Alþingi um hvernig eigi að gera það. Það eru mín sjónarmið í þessu máli.