aðgerðir stjórnvalda til orkusparnaðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða fyrirspurn. Það sem við erum auðvitað að horfa upp á, við Íslendingar, er að það er lítið búið að gerast í grænorkumálum síðustu 15 árin. Það hafa verið settar rannsóknarnefndir af stað af minna tilefni. En það er bara það sem við horfum upp á. Það er lítið búið að framleiða af grænni orku í formi rafmagns og líka eru heitavatnsmálin, sem við höfum lítið rætt, á þeim stað að við þurfum virkilega að ganga í þau verk því að við höfum alla burði til þess. En hv. þingmaður hittir algerlega naglann á höfuðið þegar hann nefnir að það snýst ekki bara um að búa til græna orku heldur líka að fara betur með hana og spyr: Hvað erum við að gera í því? Auðvitað erum við búin að gera mjög mikið á þessu kjörtímabili. Við rufum kyrrstöðuna þegar kemur að rammaáætlun í fyrsta skipti í níu ár. Ég var t.d. bara núna að koma af fundi með sveitarfélögunum í Norðvesturkjördæmi, sveitarfélögum sem eru á Norðvesturlandi, þar sem ég var að skrifa undir viljayfirlýsingu um að nýta glatvarma með því gagnaversfyrirtæki sem er á Blönduósi. Í það eru sveitarfélögin og við að fara. Svo erum við líka farin af stað í jarðhitaleitarátak í fyrsta skipti í mjög langan tíma. Varmadælufrumvarpið, sem er í rauninni orkusparandi frumvarp sem var klárað um leið og ramminn, er nú þegar búið að skila því að við erum að spara orku sem nemur heilsársnotkun 605 rafbíla eða 442 húsa. Það er komið af stað og þar sést árangur nú þegar. Aflsstækkun virkjana, einföldunarferlið þar, sem er væntanlega stærsta einföldunarverkefnið sem við höfum farið í mjög lengi eða nokkurn tímann, hjálpar svo sannarlega til við að nýta orkuna betur. Síðan er mjög áhugaverð skýrsla um orkusparnað (Forseti hringir.) sem við höfum fengið kynningu á frá Landsvirkjun sem ég fer kannski aðeins nánar í í seinna andsvari mínu.