154. löggjafarþing — 15. fundur,  16. okt. 2023.

aðgerðir stjórnvalda til orkusparnaðar.

[15:43]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er greinilegt að það er ýmislegt í gangi varðandi orkusparnað. Í því tilliti langar mig að bæta við að það verði ekki bara horft til einstaklinga og fyrirtækja heldur held ég að það sé mjög mikilvægt að horft verði til hins opinbera, bæði sveitarfélaga og ríkis. Langar mig þá að nefna að ég held að það hafi verið í ágúst sem það kom út greining verkfræðistofunnar Eflu fyrir Norðurorku sem sýndi fram á að það mætti spara 33% ef bara væri breitt yfir sundlaugar á Íslandi þegar þær eru ekki í notkun, bara þessi einfaldi þáttur. Þarna sjáum við að það eru ýmis tækifæri til að gera enn betur. Því vil ég spyrja ráðherrann hvort hann sé ekki sammála mér í því að það sé mikilvægt, og ég heyri að hann er sammála varðandi hvatana, að ríki og sveitarfélög kannski leiði svolítið með góðu fordæmi í þessu tilliti.