154. löggjafarþing — 15. fundur,  16. okt. 2023.

tæknifrjóvgun o.fl.

16. mál
[18:09]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég er sérlega glöð að geta hér mælt fyrir frumvarpi mínu um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa og lögum um ófrjósemisaðgerðir. Málið snýst í meginatriðum um að auka endurgreiðslur vegna tæknifrjóvgana til muna. Til að fjármagna þann kostnað legg ég til að fella niður niðurgreiðslu á valkvæðum ófrjósemisaðgerðum. Meðflutningsmenn mínir á málinu eru Óli Björn Kárason, Birgir Þórarinsson, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Teitur Björn Einarsson, Inga Sæland, Tómas A. Tómasson, Jakob Frímann Magnússon, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson og Logi Einarsson og kann ég þeim bestu þakkir fyrir.

Forseti. Núverandi niðurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á tæknifrjóvgunum er 5% í fyrstu meðferð. Legg ég til að niðurgreiðslan verði hækkuð upp í 75% þannig að meðalkostnaður við fyrstu tæknifrjóvgun fari úr 566.000 kr. niður í 147.500 kr. Ég legg einnig til að niðurgreiðsla við aðra til fjórðu tæknifrjóvgun fari úr 65% í 90%. Þar að auki kveður frumvarpið á um að tæknifrjóvgunarmeðferðir vegna fyrirsjáanlegrar ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferða á borð við geislameðferð og lyfjameðferð verði gerðar með öllu gjaldfrjálsar.

Samhliða aukinni niðurgreiðslu vegna tæknifrjóvgana er lagt til að felld verði niður endurgreiðsla Sjúkratrygginga til einstaklinga sem velja að fara í ófrjósemisaðgerðir. Það er og verður sjálfsagður réttur fólks að fara í slíkar ófrjósemisaðgerðir en í stað þess að ríkið standi straum af þeim kostnaði verði fjármunum forgangsraðað betur í því skyni að létta fjárhagslega undir með fólki sem vill reyna að verða foreldrar. Gert er ráð fyrir því að lækkun á greiðsluþátttöku vegna ófrjósemisaðgerða nemi hærri fjárhæð en hækkun sem leiðir af aukinni greiðsluþátttöku vegna tæknifrjóvgana og hafi því jákvæð áhrif á stöðu ríkissjóðs.

Það er mikilvægt þeir einstaklingar sem leggja þurfa upp í kostnaðarsamt ferli tæknifrjóvgana upplifi að umgjörð laga og reglna um tæknifrjóvgun sé gerð þeim til aðstoðar.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur frjósemi íslenskra kvenna aldrei verið minni en árið 2022, en þá fæddist 4.391 barn. Var um að ræða fækkun frá árinu 2021 þegar 4.879 börn fæddust, sem er mesta fækkun á milli ára frá árinu 1838. Almennt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um það bil 2,1 barn á hverja konu til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma. Árið 2022 var frjósemi íslenskra kvenna hins vegar einungis 1,59 börn á hverja konu og hefur frjósemi ekki farið yfir 2,0 síðan árið 2012. Fyrir utan að það er sanngirnisatriði að hið opinbera aðstoði fólk í þeirri erfiðu stöðu að geta ekki eignast börn er mikilvægt að þessari þróun sé snúið við, enda hefur langvarandi fækkun barnsfæðinga neikvæðar efnahagslegar afleiðingar og þar með á samfélagið allt.

Þegar fæðingartíðni er jafn lág og raun ber vitni skýtur það skökku við að einstaklingar sem eiga erfitt með að eignast börn eftir hefðbundnum leiðum þurfi að standa straum af miklum tilkostnaði við að sækja sér aðstoð við barneignir á sama tíma og hið opinbera niðurgreiðir ófrjósemisaðgerðir að fullu. Að mati frumvarpshöfunda er bæði sanngjarnara og skynsamlegra að auka stuðning hins opinbera við tæknifrjóvganir.

Breyting þessi á lögum um ófrjósemisaðgerðir felur í sér að ófrjósemisaðgerðir verði ekki lengur gjaldfrjálsar og að þeir sem gangast undir slíka aðgerð standi straum af kostnaðinum sjálfir. Að mati frumvarpshöfunda er ekki tilefni til þess að aðgerðir sem þessar séu niðurgreiddar af hinu opinbera, enda er hvorki um brýna nauðsyn fyrir einstaklinginn að ræða né hagsmuni almennings, eins og á við um fleiri aðgerðir innan heilbrigðiskerfisins, svo sem laseraugnaðgerðir. Sé ófrjósemisaðgerð hins vegar framkvæmd að læknisráði vegna sjúkdóms, veikinda eða annarra sérstakra tilvika skulu Sjúkratryggingar Íslands standa straum af kostnaði við aðgerðina. Til sérstakra tilvika gætu sem dæmi talist þær aðstæður þegar ómögulegt væri að fara í hefðbundna ófrjósemisaðgerð, en unnt væri að framkvæma slíka aðgerð á annan og meira íþyngjandi og kostnaðarsamari hátt. Í þeim tilvikum getur talist réttlætanlegt að slík aðgerð yrði niðurgreidd að einhverju leyti.

Sjúkratryggingum Íslands er í dag heimilt að niðurgreiða vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sem nemur 5–65% af kostnaði meðferðarinnar en þetta hlutfall reiknast þó af gjaldskrá sem stofnunin sjálf gefur út og endurspeglar ekki raunverulegan kostnað vegna tæknifrjóvgana. Raunverulegur kostnaður vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar er í reynd talsvert hærri, en samkvæmt gjaldskrá LIVIO, eina fyrirtækisins sem býður upp á slíkar meðferðir hér á landi, er kostnaðurinn 590.000 kr., rúmlega 100.000 kr. hærri en sú upphæð sem tiltekin er í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að heildarkostnaður við tæknifrjóvgunarmeðferðir sé sama fjárhæð og raunkostnaður á framlagningardegi frumvarpsins. Verðlags- og gjaldskrárbreytingar gera þó væntanlega það að verkum að raunkostnaður hækkar í krónum talið eftir því sem tíminn líður. Því er í 4. mgr. 1. gr. kveðið á um heimild ráðherra til að mæla fyrir um aukna greiðsluþátttöku í reglugerð, en í slíkri reglugerð getur ráðherra ákveðið að greiðsluþátttaka hins opinbera skuli nema hærri fjárhæð en 590.000 kr.

Þá er mælt fyrir um að tæknifrjóvgunarmeðferðir og þeir þættir hennar sem taldir eru upp í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins vegna fyrirsjáanlegrar ófrjósemi í kjölfar geislameðferðar, lyfjameðferðar og beinmergsflutnings verði alveg gjaldfrjáls. Þetta er mikið sanngirnismál, forseti. Og ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að ég hafi um langt skeið kynnt mér regluumhverfi tæknifrjóvgana þá hreinlega vissi ég ekki að aðgerðir sem þessar sem konur verða að undirgangast vegna svona meðferða væru ekki gjaldfrjálsar eða partur af t.d. þeirri krabbameinsmeðferð sem viðkomandi þarf að undirgangast. Mér þykir þetta sanngirnismál, forseti, og ég þakka góðgerðafélaginu Lífskrafti fyrir að vekja athygli mína á þessu. Þær voru með söfnun um daginn sem styður við konur í þessari stöðu en markmiðið með þessu frumvarpi er að fallegar safnanir eins og þær hafa staðið í núna á undanförnum vikum verði óþarfi þar sem hið opinbera stígi inn í og aðstoði á þennan hátt gagnvart því fólki sem þess þarf.

Við gerð frumvarpsins voru mismunandi leiðir kannaðar til að styðja þá einstaklinga sem gangast þurfa undir tæknifrjóvgunarmeðferð vegna yfirvofandi ófrjósemi í kjölfar læknismeðferðar vegna hættulegs sjúkdóms, m.a. var skoðað hvort rétt væri að fella tæknifrjóvgunarmeðferðir í þeim tilvikum undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands og litið yrði á tæknifrjóvgun sem hluta af læknismeðferð vegna sjúkdómsins. Að mati flutningsmanna er þó einfaldara að mæla fyrir um að tæknifrjóvgunarmeðferðir í þessum tilvikum séu ávallt gjaldfrjálsar og yrðu því ekki háðar greiðsluþátttökukerfi sem getur auðveldlega tekið breytingum með ákvörðunum stjórnvalda.

Með breyttri viðmiðunarfjárhæð sem er í samræmi við raunkostnað við tæknifrjóvgunarmeðferðir ásamt auknu greiðsluþátttökuhlutfalli Sjúkratrygginga Íslands verður einstaklingum auðveldað til muna að leita sér aðstoðar við barneignir. Ljóst er að greiðslubyrði getur orðið mikil í núverandi lagaumhverfi og leggst hún eðli máls samkvæmt fyrst og fremst á ungt fólk á barneignaraldri, sem mörg hver hafa lægri tekjur en þau sem eldri eru. Fari einstaklingur í eina tæknifrjóvgunarmeðferð samkvæmt gildandi reglum þarf hann að greiða 566.000 kr., en fari hann í fjórar tæknifrjóvgunarmeðferðir þarf hann að greiða samtals 1.400.000 kr. Verði frumvarp þetta að lögum yrði kostnaðurinn hins vegar mun lægri, eða 147.500 kr. fyrir þann sem fer í eina meðferð og 324.500 kr. fyrir þann sem fer í fjórar meðferðir miðað við núverandi gjaldskrá LIVIO. Frumvarpið, verði það að lögum, eykur því verulega möguleika fólks á að eignast börn og þá sérstaklega möguleika þeirra sem tekjulægri eru.

Þetta er sanngirnismál, að við hjálpum fólki sem er í þeirri stöðu að geta ekki eignast börn eða á í erfiðleikum með það og ég veit að þessar breytingar munu skipta fjölda fólks heilmiklu máli.

Forseti. Á verðbólgutímum skiptir máli að sýna ábyrgð í ríkisrekstri. Miðað við þær forsendur sem liggja fyrir má ætla að kostnaður hins opinbera vegna aukins stuðnings við tæknifrjóvganir aukist um rúmar 180 millj. kr. á ári. Aftur á móti myndi afnám greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna ófrjósemisaðgerða spara hinu opinbera hærri fjárhæð, eða 220 millj. kr. sem er um 40 millj. kr. hærri en kostnaður við aukna greiðsluþátttöku vegna tæknifrjóvgunarmeðferða, og það þykir mér góð forgangsröðun. Heildaráhrif frumvarpsins eru því jákvæð fyrir ríkissjóð. Ég endurtek að það skiptir máli á verðbólgutímum. En þetta frumvarp er fyrst og fremst hugsað sem sanngirnismál.

Ég þakka aftur fyrir hve breiðan stuðning málið fékk hjá meðflutningsmönnum. Ég óska eftir góðum viðtökum hér á þinginu og að því sögðu legg ég til að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar hjá hv. velferðarnefnd.