tæknifrjóvgun o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég virði hennar afstöðu, ég geri það, en vil þó fá að nota tækifærið hér og segja að mér finnst hlutverk stjórnmálanna vera að forgangsraða fjármunum þar sem þörfin er meiri. Ég held að alla jafna sé alltaf hægt að finna ákveðna kosti við hvaðeina sem við gerum hér og það er auðvitað hægt að finna jákvæð rök fyrir því að það sé auðvelt að fara í valkvæðar ófrjósemisaðgerðir í stað þess að þurfa að vera á getnaðarvörnum. Ég ber að sjálfsögðu virðingu fyrir því. Mér finnst hins vegar skipta meira máli, ég held að það skipti fólk meira máli að fá stuðning við tæknifrjóvgunarmeðferðir, fólk sem oft á tíðum horfist í augu við svo háan kostnað að það getur ekki leyft sér að reyna. Og fyrir utan hvað það er tilfinningalega erfitt þá finnst mér það samfélagslega óskynsamlegt. Mér finnst það vera sanngirnishlutverk okkar sem stöndum hér að reyna að gera því fólki auðveldara í sinni vegferð. Það er mitt pólitíska mat að svona breyting og svona mikil kostnaðarþátttaka hins opinbera fari ekki í gegn og ég tala nú ekki um á tímum sem við upplifum núna þar sem við verðum bara að horfa í hverja einustu krónu. Við megum ekki auka útgjöldin meira og þá er það skylda okkar að finna kostnað á móti þegar ég segi að þetta sé gerlegt. Ég nota því tækifærið hér og segi: Mér þykir þessi forgangsröðun kristaltær en ég ber virðingu fyrir þessum sjónarmiðum og mér finnst sjálfsagt að velferðarnefnd taki þau til skoðunar.