Slysasleppingar í sjókvíaeldi.
Forseti. Umræðan um sjókvíaeldi hefur farið hátt í íslensku samfélagi undanfarið í kjölfar ítrekaðra umhverfisslysa. Nú síðast í sumar sluppu 3.500 eldislaxar úr laxeldiskví Arctic Fish. Þessi slysaslepping er önnur stóra slysasleppingin sem komið hefur upp í íslensku sjókvíaeldi á síðastliðnum árum en árið 2020 sluppu 82.000 eldislaxar úr sjókví hjá Arnarlaxi. Vandamál við slysasleppingar eru ekki ný af nálinni í víðara samhengi fiskeldis. Undanfarin 20 ár hefur villtur laxastofn í Noregi dregist saman um helming og er að finna erfðablöndun í 71% norskra áa. Hingað til hefur ekki tekist að koma í veg fyrir að laxar sleppi úr opnu sjókvíaeldi. Það hefur ekki verið hægt að koma í veg fyrir það. Reynslan í Skotlandi og Kanada er ekkert betri, hún er bara jafn slæm. Í raun bendir reynslan hér á landi og í þeim löndum sem hafa mun meiri reynslu en við höfum í þessum iðnaði til þess að sleppilax sé órjúfanlegur partur af sjókvíaeldi. Laxalús er það líka. Nú herjar laxalúsafaraldur á íslenskan eldislax rétt eins og hún hefur gert undanfarna áratugi í Noregi og Skotlandi. Ágengni lúsar á sunnanverðum Vestfjörðum er verri en nokkru sinni. Lyfið sem er notað til að drepa lúsina hefur mikil og víðtæk áhrif á vistkerfið, t.d. á aðra hryggleysingja; krabbadýr og rækju. Lyfið á einungis að nota sem neyðarúrræði en þrátt fyrir að það eigi bara að nota það í neyð er það núna í notkun á átta laxeldissvæðum í Arnarfirði, Tálknafirði og Dýrafirði, víðar en það hefur nokkurn tímann áður verið leyft. Þannig að þetta er verulegt vandamál.
Það er ekkert annað en óskhyggja, forseti, að halda því fram að hér á landi eða annars staðar sé hægt að stunda sjókvíaeldi í opnum sjókvíum og á sama tíma tryggja að alvarleg umhverfisslys eigi sér ekki stað. Það er óskhyggja. Við þurfum að horfast í augu við þennan veruleika (Forseti hringir.) og banna sjókvíaeldi í opnum sjókvíum strax.