154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

Slysasleppingar í sjókvíaeldi.

[14:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég vil fyrst þakka málshefjanda fyrir að opna þessa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í henni. Það blasir við að hér er til þess að gera ung grein sem er að þróast áfram í íslensku samfélagi og er orðin gríðarlega mikilvæg á þeim svæðum þar sem hún starfar og er núna, í þessari umræðu sem við tökum hér þátt í og hefur verið í gangi undanfarið, á grundvelli þess óhapps, þess slyss sem varð í þessari tilteknu kví fyrir vestan.

Við höfum undanfarin ár farið í gegnum töluvert mikla umræðu um það að við ættum að treysta vísindunum. Hvað mig varðar þá ætla ég að nálgast þetta mál þannig og það er þannig að eldi í fjörðum landsins, þar sem það er leyft, er undirorpið áhættumatinu — ekki burðarþolsmatinu heldur undirorpið áhættumatinu hvað umfang varðar. Það skiptir að mínu mati gríðarlega miklu máli. Nú er Hafró, eins og fram hefur komið í umræðunni og kom fram hjá hæstv. ráðherra, búið að taka til sín matið og er núna að fara yfir það og ég skil það sem svo að áætlað sé að frétta sé að vænta úr þeirri átt öðru hvorum megin við áramót. Þangað til sú vinna er um garð gengin er okkur nokkur vandi á höndum að ræða þetta því að ef við horfum á stóra samhengið, tímann frá því að eldi hefst aftur rétt um 2010, þá eru þetta ekki nema átta íslenskir laxar sem hafa veiðst í íslenskum nytjaám þangað til óhappið verður núna. Við verðum, held ég, að skoða þetta óhapp sem þarna varð og læra af því. Ég heyri hingað til engan hér í salnum leggja til að sjókvíaeldi verði hætt nema mögulega hv. þm. Halldóru Mogensen, þingmann Pírata, en aðrir eru að leita leiða til að gera þetta betur. Það er, held ég, nálgunin sem við eigum að leitast við (Forseti hringir.) að hafa því að öll þurfum við í þessu samfélagi að finna leið til að lifa (Forseti hringir.) í sátt og samlyndi og eru mismunandi atvinnugreinar þar með taldar.