154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

Slysasleppingar í sjókvíaeldi.

[14:42]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Þróun í íslensku fiskeldi hefur verið mikil og hröð á síðastliðnum áratug og má segja að alger umskipti hafi átt sér stað. Fiskeldi í sjó hefur farið frá því að vera atvinnugrein sem nánast var búið að afskrifa sem raunhæfan valkost við íslenskar aðstæður yfir í að vera sú grein sem margir horfa til sem helsta vaxtartækifæris í matvælaútflutningi til næstu áratuga. Laxeldisfyrirtæki sem stunda sjókvíaeldi eru nú starfrækt bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum. Þessi fyrirtæki hafa náð umtalsverðum árangri í framleiðslu á stuttum tíma og skapað ný tækifæri og störf á þessum svæðum. Frá upphafi hafa aðgerðir til að draga úr umhverfisáhættu fiskeldis verið ofarlega á blaði, líkt og kom fram í skýrslu starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá árinu 2017, en þar segir að ákvarðanir stjórnvalda um framtíð fiskeldis skuli grundvallast á vísindalegum rannsóknum, eldistilraunum og vöktun í ám þannig að atvinnugreinin verði í sem mestri sátt við umhverfið.

Þær slysasleppingar sem urðu í Patreksfirði eru alvarlegar og fordæmalausar í því magni sem um ræðir. Þetta er alvarlegt tjón fyrir fyrirtækið og ákveðið áfall fyrir samfélagið fyrir vestan og greinina í heild, eitthvað sem við verðum að draga lærdóm af og tryggja í samstarfi við greinina hvernig við getum búið til umgjörð sem lágmarkar þessa áhættu. Það mætti til að mynda horfa á kröfur varðandi myndavélakerfi, tíðni eftirlitsköfunar o.fl., en gleymum því ekki að slysasleppingar geta alltaf átt sér stað. Það er beinlínis gert ráð fyrir þeirri áhættu í áhættumatinu.

Ég ætla ekki að standa hér og gera lítið úr áhættunni eða slysasleppingum en ég vil biðja þingheim um að nálgast þessa umræðu út frá staðreyndum, hagsmunum vistkerfisins í heild og ekki síst þeirra samfélaga sem eiga mikilla hagsmuna að gæta og hafa gert vel í að byggja upp þessa grein sem skapar hundruð starfa í landsbyggðunum öllum til heilla.