Slysasleppingar í sjókvíaeldi.
Forseti. Þetta er enn eitt dæmið um ákveðið ábyrgðarleysi þar sem er verið að reyna að finna alls konar afsakanir til að halda áfram iðnaði sem virkar einfaldlega ekki. Ég hef enga trú á að stóru orðin um eftirlit og afleiðingar verði að einhverjum veruleika því að þó að það verði kannski afleiðingar í lögum þá held ég að það þurfi eitthvert kraftaverk til að hagsmunaaðilar þurfi að axla ábyrgð. Þetta er kannski kunnuglegt stef úr ýmsu öðru. Þetta er alltaf að gerast. Það er ástæða fyrir því að þessum undanþágum var troðið hérna í gegnum þingið á einum degi. Sami söngur og áður. Hann er yfirleitt dulbúinn á einhvern hátt, eins og hv. þm. Teitur Björn Einarsson kom hérna með áðan, kemur með einhver rök sem hann klæðir í vísindalegan búning en það er ekkert nema hrekkjavökubúningur þegar allt kemur til alls því að það þurfti ekki nema stutta leit í vísindaritum til þess að finna að í Noregi t.d. eru stórar rannsóknir sem hafa verið gerðar þar sem niðurstöður eru m.a. að af 239 stofnum sem eru þar — eða stofnar er nú ekki rétt, það eru svona „populations“, í rauninni bara í ám sem laxar ganga upp í — eru tveir þriðju sem bera merki um genamengun, tveir þriðju af þeim sem voru rannsakaðir. Það ber þess merki að þetta áhættumat sem var áður, að það þyrfti stórar sleppingar oft, er einfaldlega rangt. Það er rangt og það sýnir sig í raungögnum. Það eru staðreyndirnar sem við þurfum að tala um, hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson.