Slysasleppingar í sjókvíaeldi.
Herra forseti. Við erum að fá það núna í bakið að hér hefur atvinnugrein vaxið í skjóli stjórnvalda sem hafa vanrækt þá skyldu sína að búa henni viðunandi umgjörð. Það liggur alveg fyrir og ég held að það sé enginn sérstakur ágreiningur um að við getum ekki alveg haldið áfram á þeirri braut sem vörðuð hefur verið síðustu árin. Þessi stefnulausa uppbygging hefur að einhverju leyti verið knúin áfram af pólitískum þrýstingi og hagsmunaaðilum og hefur sett okkur í þá stöðu að atvinnugrein sem skilar tugmilljörðum í þjóðarbúið og skapar mikla atvinnu í viðkvæmum byggðum á núna í vök að verjast vegna neikvæðra áhrifa á umhverfið, bæði sleppingarnar og að sjálfsögðu laxalúsin líka. Ríkisendurskoðun hefur aldeilis ekki verið eina stofnunin sem á þetta hefur bent. Sveitarfélögin hafa til að mynda stundum verið eins og hrópandinn í eyðimörkinni og bent á að regluverk og eftirlit með greininni hafi ekki verið í samræmi við stærð, vöxt og verðmætasköpun. Lítið hefur verið hlustað á það hingað til. Fyrir vikið erum við núna að bregðast við umhverfisslysi í stað þess að hafa komið í veg fyrir að slíkt slys yrði.
Það er ástæða til að taka undir það sem komið hefur fram hjá matvælaráðherra þegar hæstv. ráðherra orðar það þannig að engin frávik verði án afleiðinga. Það er þá líka eins gott að alvarleg frávik hafi í för með sér alvarlegar afleiðingar og að stórfelld vanræksla og fúsk leiði til leyfissviptinga. Fyrirtæki sem þannig haga sér eiga ekkert erindi í það að vera með viðkvæma starfsemi í fjörðum landsins. Að sama skapi verða að vera hvatar til þess að fyrirtækin fjárfesti í betri tækjum og umhverfisvernd. Kostnaður vegna frávika verður að sama skapi að vera greiddur af þessum sömu fyrirtækjum.
Við getum ekki nálgast þetta úrlausnarefni með því að gefa okkur að hættan sé hverfandi. Mér finnst það svolítið blasa við þessa dagana að reyndin er ekki svo. Eftirlit sem er of háð hagsmunaaðilum er ekki til eftirbreytni. Það er heldur ekki til eftirbreytni að Hafrannsóknastofnun þurfi að sækja um fjármagn í samkeppnissjóði til að framkvæma burðarþolsmat eða vöktun. Þessi grein (Forseti hringir.) þarf að greiða sanngjarnt og vel afmarkað auðlindagjald sem á ekki að rugla saman (Forseti hringir.) við skatta eða aðra gjaldtöku. Og við eigum ekki að ljá máls á því að koma upp eldisstarfssemi í Jökulfjörðum fyrir vestan. Við þurfum einfaldlega að gera betur.