Slysasleppingar í sjókvíaeldi.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. matvælaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, fyrir hennar innlegg í þessa umræðu sem og hv. þingmönnum fyrir að hafa tekið þátt í þessari umræðu. Slysasleppingar í sjókvíaeldi eru alvarlegt mál þannig að það þarf að vera á hreinu að ef sjókvíaeldi á að byggjast upp í sátt við umhverfi og samfélag við strendur landsins þá þarf að tryggja að þetta sé gert vel. Það þarf að tryggja að eftirlitið sé í lagi. Það þarf að tryggja að fyrirtækin sýni ábyrgð og það þarf að tryggja að erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa muni ekki eiga sér stað. Sú stefnumótun sem á sér stað í matvælaráðuneytinu þarf að taka á þessum málum og ég vil hrósa hæstv. matvælaráðherra fyrir þá vinnu sem á sér stað í matvælaráðuneytinu. Skýrsla Ríkisendurskoðunar, skýrsla Boston Consulting, stefnumótunarvinna fyrir framtíðarsýn í lagareldi sem hefur nýlega verið kynnt, þetta er mjög góður grunnur fyrir þá lagasetningu sem við þurfum að fara í því að þetta er stór málaflokkur og við þurfum að vera vel undirbúin og tryggja að allir komi að borðinu. En í ljósi umræðunnar í dag vil ég segja að við megum ekki gera lítið úr áhyggjum fólks. Fólk hefur áhyggjur af erfðablöndun og það hefur áhyggjur af atvinnuöryggi sínu. Ein leiðin til að koma til móts við það er að reyna að tryggja að eldislaxarnir komist ekki upp í laxveiðiárnar. Við þurfum að tryggja að sjókvíaeldin fari eftir þeim skilyrðum sem við setjum þeim. Við þurfum að tryggja, við þingmenn hér, að lögin nái yfir þessa stóru atvinnugrein og að lögunum sé fylgt því ef það er ekki möguleiki þá er trúverðugleiki og ímynd tveggja atvinnugreina í húfi, sjókvíaeldis og laxveiða, og við þurfum að gera betur í þessum málum.