154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

327. mál
[16:57]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Ásamt mér eru flutningsmenn málsins hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarni Jónsson, Bryndís Haraldsdóttir, Inga Sæland, Ingibjörg Isaksen, Jakob Frímann Magnússon, Jódís Skúladóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Logi Einarsson, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson.

Þingsályktunartillagan snýr að því að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri. Með þessari tillögu er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu er augljós tenging við sjúkraflug í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar geta læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið. Í þessu samhengi er rétt að benda á að í fjölmiðlum hefur komið fram að tveir af sex þyrluflugstjórum Gæslunnar búa fyrir norðan.

Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 500 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 200–300 millj. kr. Nú þegar eru til staðar flugvirkjar sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn á heilbrigðisstofnunum, slökkviliði og fleiri geta nýst í rekstur þyrlu á Akureyri og starfsemi hennar. Hlutfall þyrluflugs hefur verið um 15% af heildarsjúkraflugi í landinu. Mýflug hefur sinnt um 85% af sjúkrafluginu með sínum tveimur flugvélum.

Fjarlægðirnar eru miklar og það sem hefur sýnt sig er að rekstur þyrlu á höfuðborgarsvæðinu hefur illa nýst á austurhluta landsins. Eins og við þekkjum eru fjarlægðir miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til að sinna sjúkraflutningum á austurhluta landsins með sjúkraþyrlum í þeim tilfellum þar sem erfitt er að koma sjúkraflugi við yrði nauðsynlegt að staðsetja þyrlu á svæðinu.

Það er ekki langt síðan sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni sem þýðir að það eru tvær áhafnir á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til að efla björgunargetu þyrluflugsveita Landhelgisgæslunnar.

Það er ekki skynsamlegt, ef við ræðum áhættudreifingu, að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar kemur að eldsvoða, vatnstjóni og öðrum mögulegum skakkaföllum þar sem þyrlurnar eru geymdar og að hafa allar þyrlurnar fastar á sama veðurfarssvæðinu er óskynsamlegt. Að hafa þyrlur eingöngu staðsettar í Reykjavík dreifir illa þjónustu. Sérstaklega er það afleitt fyrir Norður- og Austurland og hafsvæðið þar út af eins og sjá má á mynd sem fylgir þingsályktunartillögunni. Með þyrlu í Reykjavík og á Akureyri mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega.

Aðeins um það sem hefur verið ályktað og skýrslur og umræðu um þetta málefni á síðustu árum. Þar hafa m.a. komið fram þau sjónarmið að hafa þyrlu á Akureyri og t.d. benti vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi árið 2009 á þann veikleika sem felst í því að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins 2006 ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlurnar til að stytta björgunartíma. Landspítalinn í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku m.a. undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggja staðsetningu björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu. Segja má að rökin að baki þessum ályktunum gildi enn þann dag í dag. Undanfarið hefur hafa aðalvarðstjóri lögreglunnar á Akureyri og forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri tjáð sig um mikilvægi þess að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri.

Í sumar var staðsett þyrla á Akureyri um verslunarmannahelgina og Fiskidagshelgina og það sýndi sig þær tvær helgar hversu mikilvægt var að hafa þyrlu á svæðinu og það var mikið að gera þessar tvær helgar. Þess má geta líka að þetta getur valdið jákvæðum ytri áhrifum sem við hugsum kannski ekki einu sinni um daglega. En það hefur verið bent á að hreyfanleiki sérsveitarinnar, sem er staðsett á Akureyri, væri betri og myndi einnig styðja við sjúkralið og lögreglu á svæðinu.

Það kemur einnig fram kafli um Atlantshafsbandalagið og meiri áherslu á viðveru af hálfu bandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi til að efla styrk bandalagsins á norðurslóðum. Að mati flutningsmanna þessarar þingsályktunartillögu er eðlilegt að líta til þess að á næstu árum efli íslenska ríkið getu sína til að sinna leit og björgun á hafsvæðinu í kringum Ísland. Nú þegar mikilvægi norðurslóða er að aukast er rétt að líta til þess hvernig hægt væri að styrkja þessa starfsemi hér á landi og þá jafnvel í samstarfi við vinaþjóðir innan Atlantshafsbandalagsins. Hér er rétt að líta til þess að Danir hyggjast í þessu skyni verja 1,5 milljörðum danskra króna eða um 30 milljörðum íslenskra króna. Þar er m.a. horft til þess að endurnýja þau fjögur varðskip sem þeir hafa haldið úti á Norður-Atlantshafi. Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum sem kom út á síðasta ári kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja betur vöktun. Svæðið sem Landhelgisgæslan ber ábyrgð á spannar 1,9 milljónir ferkílómetra. Svæðið er 19 sinnum stærra en Ísland.

Aðeins um að byggja upp aukna björgunargetu: Þá telja flutningsmenn skynsamlegt að efla leitar- og björgunargetu á norðausturhluta landsins með því að staðsetja varanlega björgunarþyrlu á Akureyri líkt og þekkist á höfuðborgarsvæðinu. Freyja, með heimahöfn á Siglufirði, var stórt skref í að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar og þá sérstaklega á hafsvæðinu norðan og austan við Ísland. Nú er rétt að líta til þess að staðsetja varanlega þyrlu á Akureyri og byggja upp öfluga starfsstöð á Norðurlandi.

Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu hér á landi með þyrlum. Á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Það hefur verið mikil vinna lögð í að styrkja þetta viðbragð. Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla björgunargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi og hafsvæðinu þar út af með því að staðsetja björgunarþyrlu varanlega á Akureyri í góðri samvinnu við vinaþjóðir okkar. Skynsamlegt væri og í anda opinberrar stefnumörkunar og byggðafestu að byggja upp leitar- og björgunargetu á norðurslóðum við Eyjafjörð. Þar er hægt að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu og væri gott framhald af staðsetningu Freyju á Siglufirði.

Ég vil bæta aðeins við einu atriði sem kannski er ekki mikil umræða um í greinargerðinni en á það hefur verið bent að undanförnu og lítillega komið inn á það í greinargerð málsins og það er sérsveitin á Akureyri. Ég minntist aðeins á að það gæti falist ýmislegt jákvætt í því að staðsetja þyrlu á Akureyri sem er ekki farið í ítarlega í greinargerð þingsályktunartillögunnar. Það er stuttlega minnst á sérsveit lögreglunnar þar en það er rétt að leggja áherslu á það að þyrla á Akureyri myndi bæta viðbragð sérsveitarinnar um allt land. Það myndi stytta viðbragð sveitarinnar á þeim svæðum sem eru lengst frá höfuðborginni. Hér er rétt að hafa í huga að í dag er til öflugt viðbragð í sjúkrafluginu, það er með flugvélum, og hefur samnýting á því við flutning sérsveitar þegar sannað gildi sitt. Búið er að tryggja aukið viðbragð sérsveitar frá Akureyri með fjölgun sérsveitarmanna með starfsstöð þar. Þyrla staðsett á Akureyri myndi enn frekar styðja við það viðbragð og tryggja flutning sérsveitar í útköll með sem skemmstum hætti út um allt land. Þegar koma til alvarlegir, lífshættulegir áverkar á fólki er mikið rætt um mikilvægi þess að veita slösuðum sérhæfða lífsbjargandi aðstoð á um klukkustund til að auka lífslíkur og batahorfur umtalsvert. Í því samhengi verður sérsveit að miða við að geta komist um sem stærstan hluta landsins innan þess tíma til að tryggja að ástand sé þannig að hægt sé að koma slösuðum til aðstoðar. Í dag er það best gert með flugi frá Akureyri.

Herra forseti. Í kjördæmavikunni fyrir hálfum mánuði síðan fengu þingmenn Norðausturkjördæmis kynningu hjá Birni Gunnarssyni, yfirlækni sjúkraflugs á Akureyri. Hér er reyndar einnig rétt að benda á viðtal við Björn á vef Ríkisútvarpsins 22. september síðastliðinn, þar sem bent er á að það sé brýnt að staðsetja sjúkraþyrlu á Norður- og Austurlandi. Í rannsókn sem hann og fleiri unnu, þar sem notast var við flókin stærðfræðilíkön og stuðst við tölur um íbúaþéttni og fjölda forgangsútkalla til að finna bestu bækistöð til viðbótar við þá þyrlu sem staðsett er í Reykjavík, kom í ljós að Akureyri væri besti staðurinn með það í huga að ná sem bestri þekjun á landinu miðað við tvær bækistöðvar. Auk þess hefur Akureyri gott bakland sem þarf fyrir slíkan rekstur, þ.e. þessa innviði sem ég ræddi um hér að framan. Það er því rökrétt fyrsta skref að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu á Akureyri. Í rannsókninni sem hér er vitnað í kemur fram að ef nýrri bækistöð yrði bætt við á Akureyri væri hægt að ná yfir 94% af landi miðað við 60 mínútna viðbragðstíma og rúmlega 88% ef þyrlan yrði staðsett á Egilsstöðum. Björn Gunnarsson yfirlæknir skorar á stjórnvöld að skoða þessa kosti og það sé hvorki góð né sanngjörn lausn að staðsetja allar sjúkraflutningaþyrlur á suðvesturhorninu.

Það væri góður bragur að því að dómsmálaráðuneytið, sem fer með málefni Landhelgisgæslunnar, færi í vinnu í tengslum við hvernig framtíðarsýnin á að líta út í tengslum við þennan mikilvæga rekstur sem þyrlusveit Landhelgisgæslunnar er. Hér er spurning hvort ekki þurfi að vera aðkoma á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem fer með sjúkraflutninga í landinu. Það er mikilvægt að á austurhluta landsins sé boðið upp á sömu þjónustu og við þekkjum í dag á vesturhluta landsins, þar sem þjónustuhlutverkið er allt miklu betra og ekki hægt með neinum hætti að bera saman vestur- og austurhluta landsins í tengslum við þjónustustigið sem er veitt.

Herra forseti. Að lokum vil ég segja þetta: Þyrlur eru öflugt björgunartæki og geta flýtt fyrir björgun úr erfiðum aðstæðum og í mörgum tilfellum getur það verið eini kosturinn til bjargar. Í slíkum tilfellum getur stuttur viðbragðstími skipt sköpum og því mikilvægt að staðsetja þyrlur á fleiri en einum stað á landinu, m.a. í þeim tilgangi að stytta tímann til björgunar. Þetta er bara sama og gildir um sjúkraflutninga á einstaklingum með lífshættuleg veikindi eða áverka, oft af vettvangi alvarlegra slysa. Þar er mikilvægt að geta brugðist skjótt við, koma með sérhæfða aðstoð á staðinn og geta flutt veika eða slasaða á viðeigandi sjúkrastofnun innan þeirra takmarka sem nauðsynlegt er.

Ég reikna með að málið, herra forseti, gangi til hæstv. allsherjar- og menntamálanefndar og vonast til að það fái góða umfjöllun þar í vetur. Málið er stórt og brýnt og það er af nógu að taka í því og mig grunar að það séu margir sem hafi áhuga á að senda hæstv. nefnd umsagnir um þetta stóra og mikilvæga mál.