föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Herra forseti. Sá sem hér stendur situr líka í fjárlaganefnd. Ég vonast til að þetta mál sem hér er lagt fram fari í gegnum þingið á þessum þingvetri og ég vona svo sannarlega að það geti komið inn í fjármálaáætlunina, sem kemur þá fram í mars, með einhverjum hætti, hvernig sjáum við fyrir það okkur. Hér er líka kallað, eins og ég nefndi í ræðu minni, eftir frekari stefnumótun, hvernig við ætlum til að sinna þessum málum. Og svo það sé skýrt þá er hér ekki talað um að bæta við þyrlum heldur að færa eina af þremur björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar norður til Akureyrar og skapa henni aðstöðu þar og nýta a.m.k. eina af þeim áhöfnum sem eru nú þegar inni í rekstrarkostnaði Gæslunnar. Málið snýst um að bæta þá við sjöundu áhöfninni, eins og ég kom inn á rétt áðan. Þá værum við að tala um 400–500 milljónir sem þetta myndi kosta til viðbótar við þann rekstur sem við sjáum í dag og svo væri einskiptiskostnaður í byggingu á nýju flugskýli eða aðgengi að flugskýlum á Akureyrarflugvelli, sem ég tel reyndar líka vera ágætismöguleika. Og auðvitað er líka hægt að byggja nýtt flughlað á Akureyri ef þannig háttar til og áhugi er á.
Hæstv. dómsmálaráðherra er fullljóst að það eru erfiðleikar í rekstri Gæslunnar og við sem sitjum hér á þingi og höfum verið í fjárlaganefnd í gegnum árin höfum náttúrlega margoft orðið þess áskynja.
Í ræðu minni hér áðan minntist ég á að ég hef kallað eftir því að þessi stefna sé mótuð. Að mínu viti er það grundvallarmál að íslenska landhelgisgæslan sé fjármögnuð og að við séum með á hreinu hvaða þjónustu við viljum fá og ég held að það sé of litlu fjármagni varið til hennar í dag. Mín persónulega skoðun liggur þar vegna þess að þetta er gríðarlega mikilvæg stofnun fyrir okkur Íslendinga.