154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

327. mál
[17:19]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er farið vítt yfir í ræðu minni, sem var nú töluvert löng, og það var víða komið við hérna þegar við vorum að ræða fjárlögin í 1. umræðu í haust. Það klárar enginn öll málefni þar í einni ræðu, um fjárlög ríkisins. Þar er af mörgu að taka. Það er með nákvæmlega sama hætti og í síðustu viku þegar við vorum að ræða samgöngustefnuna. Það er ekki hægt að komast yfir plaggið í stuttum ræðum. Ég bendi kannski á að núna um næstu mánaðamót verður farið að rukka inn varaflugvallargjaldið. Það eru fimm ár síðan skýrslan var lögð fram í stýrihópi sem ég stýrði og skilaði af sér í nóvember 2018. Ég kom líka inn á hér í fyrra andsvari áðan að ef þetta gengi vel — ég vona svo sannarlega að málið gangi vel í gegn hér í vetur en ég er kannski ekki að gera mér vonir, bara einn, tveir og þrír, að í fjárlögum eftir tvo mánuði verði bara búið að klára mál sem eru rétt að fara í umfjöllun í þinginu. Ég kalla hins vegar eftir því að hæstv. dómsmálaráðherra taki fast utan um málið varðandi stefnumótandi þætti þannig að það sé komin meiri framtíðarsýn á hvernig við sjáum þetta hérna lengdar.

Það var tekið gríðarlega stórt skref með að staðsetja Freyju á Siglufirði, mjög stórt skref í rekstri Gæslunnar og öryggis í landinu. En 2. umræða í fjárlögunum er eftir, ja, ég myndi segja rúman mánuð, ég hugsa að það séu svona fimm, sex vikur í það. Eigum við ekki að sjá hvernig sú umræða rætist og vinna fjárlaganefndar? En ég er ekki að koma með það hér að hóta einhverju eins og að ganga gegn fjárlögunum á þessum tímapunkti. Þetta er bara vinna sem er og við í pólitík þurfum stundum að hafa smá þolinmæði til að vinna verkin og ná þeim fram. Og það getur þá tekið lengri tíma en tvær, þrjár vikur eða fjórar.