154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

327. mál
[17:21]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég átta mig á að andsvörum er lokið en ég ætla nú samt að grípa orðið þar sem hv. þingmaður sleppti því. Ég var ekkert að gera kröfu um að hv. þingmaður hefði endilega komið inn á þetta í fjárlögum, ég var bara að benda á að hann hefði ekki gert það og þess vegna fannst mér tilvalið tækifæri að nota andsvör til að inna hann eftir þessu. Ég er heldur ekkert að reikna með því að hlutir gerist einn, tveir og þrír og ég veit að þetta er þingsályktunartillaga sem ég styð og er á og vona svo sannarlega að nái framgangi. En hér erum við ekki að ræða um stöðu, hv. þingmaður, þar sem um er að ræða kyrrstöðu og eftir einhver misseri komumst við á þann stað að geta látið þennan draum, þennan nauðsynlega draum, verða að veruleika. Við erum að sjá bakslag, hv. þingmaður. Að öðru óbreyttu er 600 millj. kr. halli á Gæslunni og hún fær 2% aðhaldskröfu. Við erum með orð dómsmálaráðherra frá því í síðustu viku um að það sé búið að ganga eins langt í hagræðingu og mögulegt er og við erum í sömu ræðu að hlusta á ráðherra segja að Landhelgisgæslan sé að glíma við gríðarlega alvarlega stöðu. Og í þriðja lagi heyrum við hæstv. ráðherra segja að ef ekkert verði að gert þá þurfi að selja skip, þyrlu eða flugvél. Þetta er nú staðan sem við erum í.

Ég er einfaldlega að óska eftir því að stjórnarmeirihlutinn, sem hefur fjárlögin meira eða minna í hendi sér, andæfi þessum áformum sem geta auðveldlega stefnt ótal Íslendingum í hættu. Við höfum séð hvernig samþjöppun á heilbrigðisþjónustunni síðustu áratugi hefur bitnað á aðgengi og verið á kostnað hinna dreifðari byggða. Í því ljósi er þetta mjög gott mál vegna þess að það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að það getur skipt höfuðmáli hvort sjúklingurinn kemst undir góðar læknishendur á mjög skömmum tíma. Og það er líka rétt að við þingmenn kjördæmisins fengum ágætiskynningu á því hjá Birni Gunnarssyni lækni hvernig flókin stærðfræðilíkön hafa sýnt að það er hægt að bæta þetta til mikilla muna með því að vera með þyrlu til taks, léttari þyrlu kannski, fjarri þéttbýlinu hér.

Fólk hefur einfaldlega réttmætar væntingar um allt land til þjónustu. Það var á sínum tíma samkomulag um það, þegar við brutumst til sjálfstæðis, að á sama tíma og við yrðum að byggja upp helstu stofnanir landsins hér þá yrði fólk ekki skilið út undan annars staðar. Lengi vel fram eftir öld voru stærri og öflugri sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir um land allt en með tíð og tíma, hugsanlega með röngum áherslum en hugsanlega líka aukinni tækni, hefur þetta þjappast saman meira eða minna á tvo staði, þ.e. Landspítala hér og svo Sjúkrahúsið á Akureyri. Það er mjög brýnt að við sinnum samgöngum og fyrstu hjálp. Þess vegna eru samgöngur í þessu ljósi heilbrigðismál, hvort sem eru á landi eða í lofti.

Það er þetta sem ég hef áhyggjur af við frumvörp af þessu tagi. Við sjáum það allt haustið hvernig stjórnarþingmenn koma með sinn óskalista. Ég er ekki að draga eitt augnablik í efa að þeir brenna fyrir því en þá verður einfaldlega að gera meira heldur en að sætta sig við að fjárlögin fari óbreytt í gegn og þá verða stjórnarliðar að rísa undir þeirri ábyrgð og sýna að þeir trúi virkilega á það sem þeir bera á borð fyrir okkur af því að hér er ekki um kyrrstöðufjárstöðu að ræða. Hér er verið að minnka peninga til Landhelgisgæslunnar.

Við þingmenn Samfylkingarinnar fórum á tugi funda um heilbrigðismál um allt land og það var mjög merkilegt að sjá hvað áherslurnar voru ólíkar í þéttbýlinu, hér á höfuðborgarsvæðinu og kannski á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu, og svo í dreifbýlinu. Hér talaði fólk um allt aðra hluti heldur en fólk í dreifbýlinu. Þar var talað mjög mikið um sjúkraflutninga. Þar var talað mjög mikið um hvað það væri mikilvægt að komast fljótt undir læknishendur. Ef ég á að lýsa því í einni setningu hvernig ég upplifði þetta þá fannst mér fólkið í hinu mesta dreifbýli vera orðið óþægilega nægjusamt. Óþægilega nægjusamt. Það endurspeglar auðvitað bara alvarleika málsins.

Ég ítreka að ég styð þessa þingsályktunartillögu. Samfylkingin styður þessa þingsályktunartillögu en við munum halda því líka til haga sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur sagt að ef ekki kemur aukið fjármagn til Gæslunnar í þessum fjárlögum þá þarf að draga saman. Þá þarf að selja flugvél, þyrlu eða skip. Það er ekki öfundsvert val að standa frammi fyrir, ekki síst þegar við ætlum að fjölga um eina þyrlu, hv. þingmaður talar um að hér eigi að nýta þriðju þyrluna en engu að síður þarf áhöfn á hana, væntanlega og í því liggja kannski þessar 500 milljónir. Ég skal berjast með hv. þingmanni fyrir þessari þyrlu sem verður staðsett á norðausturhorninu. En ég ætlast til að hann sýni það þá í verki þegar hann fjallar um og greiðir á endanum atkvæði um fjárlögin.