154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

327. mál
[17:51]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Það er þá fimmti þingmaðurinn í röð úr Norðausturkjördæmi sem talar í þessu ákveðna máli sem er vel og það er að mörgu leyti líka skiljanlegt. Það ber að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir að leiða þessa vinnu og í sjálfu sér að eiga hana, við erum meðflutningsmenn, hinir þingmennirnir sem þarna eru. Það að hafa fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri er, held ég, miklu stærra mál heldur en þetta góða mál segir og ég held að það verði seint metið til fjár að minnka viðbragðstímann. Þetta segi ég, virðulegi forseti, vegna þess, nú veit ég ekki alveg hvort þetta er viðeigandi, að sá sem hér stendur hefur nýtt sér þjónustu Landhelgisgæslunnar við það að slasa sig í smalamennsku og þurfa að vera fluttur með þyrlu til Akureyrar. Það tók töluverðan tíma að fá hana að sunnan og norður en mikið afskaplega voru þau fljót á áfangastað þegar þangað var komið. Mér finnst að viðbragðstíminn og það að hafa þyrlu á Norðurlandi veiti íbúum svæðisins öryggi, ekki bara á Norðurlandi heldur sömuleiðis í nágrannabyggðum og það kom fram í máli hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur varðandi þekjuhlutfallið að þegar þyrlan verður komin, skulum við segja, norður, þá þekjum við um 94% af landinu með því að hafa þyrlur á tveimur stöðum í staðinn fyrir að hafa þyrlu á einum.

Mikilvægi þess að veita íbúum landsins öryggi felst ekki eingöngu í því að hafa þyrlu á staðnum. Það verður að hanga saman í þessari umræðu, og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á það í sinni framsögu, að tengingin milli Landhelgisgæslunnar og sérsveitarinnar er gríðarlega mikil. Það eru tveir sérsveitarmenn á Akureyri og í gegnum tíðina hefur því nú verið fleygt fram og jafnvel lofað að sérsveitarmenn skuli vera fjórir á Akureyri. (NTF: … bæta við.) Það þarf að bæta við. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður segir að þeir séu að koma og ég trúi því bara. En í breyttum heimi er það líka nauðsynlegt. Það er að breytast svo mikið, allt mannlífið er að breytast. Við hv. þingmenn í Norðausturkjördæmi fengum mjög fróðlegan fyrirlestur frá lögreglunni á Akureyri varðandi breytta stöðu sem snýr að glæpum, því miður, og allt þetta hangir saman, þ.e. að veita fólki og íbúum landsins öryggi og veita því öryggiskennd. Það gerir það svo sannarlega ef þetta mál nær fram að ganga.

Ég get ekki annað en minnt á að það er svo sem ekkert nýtt af nálinni að ræða þessi þyrlumál. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur verið óþreytandi í gegnum tíðina og svo sem enginn betri, leyfi ég mér að segja, virðulegi forseti, að ræða um flugumferð enda hv. þingmaður flugumferðarstjóri alla jafna og með áratugareynslu hvað það varðar. En sömuleiðis hafa aðrir þingmenn í gegnum tíðina vakið máls á mikilvægi þess og vil ég, með leyfi forseta, minnast t.d. á fyrirspurn frá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen sem spurði fyrrverandi dómsmálaráðherra á 153. löggjafarþingi spurninga sem sneru að þessum sama hlut og var það áhugavert svar sem kom frá ráðherranum. Það hefur svo sem komið fram í umræðunni hvað þarf til o.s.frv.

Í ræðum sem hafa verið haldnar hér í tengslum við þetta mál hafa hv. þingmenn velt fyrir sér fjármögnun og öðru. Ég get ekki annað en sagt að mér þótti það svona frekar ósanngjörn umræða þegar var farið að ræða um fjárlög næsta árs í þessu samhengi. Vitanlega gera sér allir grein fyrir því að þetta þarf að fara í fjármálaáætlun og góðir hlutir gerast hægt. En það má samt í þessu samhengi, fyrst við erum komin út í þá umræðu að ræða um fjárlög og hv. formaður fjárlaganefndar situr í hliðarsal og fylgist spenntur með umræðunni, nefna að við höfum vissulega ákveðinn ramma sem við þurfum að halda okkur innan, í fjárlögum. En það má sömuleiðis, og ég ætla bara að beina því til hv. fjárlaganefndar, alveg velta því fyrir sér hvort öll málefnasvið þurfi að sitja undir sama hatti. Sum málefnasvið eru t.d. að fá aukningu meðan önnur eru tekin niður. Í því ráðuneyti sem hér er rætt um, dómsmálaráðuneyti, er mikil vöntun, verð ég að segja. Við tókum þessa umræðu á síðasta ári í fjárlaganefnd sem sneri að Landhelgisgæslunni og lögreglunni sömuleiðis í tengslum við leiðtogafundinn sem hér var síðastliðið vor. Fyrst við erum nú stödd hér í Norðausturkjördæmi, ég leyfi mér það af því að umræðan hefur fyrst og fremst verið þar, og ræðum það sem snýr að lögreglunni á því svæði þá er þar náttúrlega feikileg vöntun. Þetta styður allt hvert annað.

Talandi um öryggi íbúa sömuleiðis og breytta tíma þá er mjög mikilvægt í því samhengi að þingið endurskoði það upplegg sem lagt var af stað með og tengist fjárlagafrumvarpinu sem nú er í vinnu hjá hv. fjárlaganefnd, því það er nú svo, eins og fyrrverandi hv. formaður fjárlaganefndar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, kom inn á, að það er þingið sem hefur lokaorðið. Vissulega fór fjárlaganefnd svolítið hraustlega inn í fjárlögin í fyrra en það þarf ekki endilega að bæta við fjármunum. Þetta snýst frekar líka um það að menn ráðstafi fjármunum innan þess ramma sem þeir eru með. Er hugsanlega hægt að slá verkefnum innan annarra málefnasviða á frest um óákveðinn tíma? Hvar er þörfin mest o.s.frv.? Þetta er verkefni fjárlaganefndar á þessum tímum.

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu máli og vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir að mæla fyrir því, draga vagninn í þessu máli sömuleiðis, og þá vinnu sem hann hefur lagt í þetta góða mál. Greinargerðin með þingsályktunartillögunni er mjög ítarleg og mjög áhugavert að lesa hana sömuleiðis. Ég vona og trúi því að þessi þingsályktunartillaga verði til góðs og að innan ekki svo margra ára verðum við komin með þyrlu norður á Akureyri. Innviðirnir eru að mörgu leyti til staðar, einhverju þurfum við að bæta við. En ég ítreka bara, virðulegi forseti, hér í lokin að það mikilvægasta sem hvert stjórnvald getur veitt íbúum þessa lands er að fólk finni að það sé öruggt á þeim stað þar sem það velur sér búsetu.