endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni fyrir spurninguna. Já, það kemur fram að það hefur eitthvað gerst á þessum árum frá því að ég lagði þetta mál fyrst fram. Orkustofnun telur að það sé mikilvægt að skoða þetta enn frekar. Eins og kom fram í ræðu minni og kemur fram í greinargerðinni þá er þetta nokkuð langt ferli. Það hafa yfirleitt ekki verið mjög stórir aðilar sem hafa verið að byggja þessar smávirkjanir og þetta er mjög kostnaðarsamt ferli og allt sem getur aðstoðað í því að létta þetta ferli hjálpar. Ég er ekki að segja endilega að það eigi að minnka kröfurnar, við erum ekki kannski endilega að fara fram á það, heldur bara að styrkja skipulagið og ferlið í kringum þetta þannig að tíminn styttist sem það tekur að undirbúa og skila öllu inn. Það minnkar náttúrlega þann kostnað sem þarf að leggja í þegar verið er að gera slíkar virkjanir auk þess sem þær koma náttúrulega ekki til þarfa meðan þær eru ekki byggðar.
Varðandi skilgreiningu á smávirkjunum: Ég er ekki endilega að tala um að við þurfum að breyta henni eða útvíkka heldur að skoða þetta út frá því líka að það er margt sem hefur breyst og tæknin breytist líka og það getur verið að það sé margt komið fram sem styðji það að þessar virkjanir séu enn umhverfisvænni heldur en ella.