154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.

51. mál
[18:18]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held nefnilega að það séu fleiri samlegðarfletir og ég og hv. þingmaður séum um margt sammála um markmiðið með tillögunni. Ég vil þó hins vegar gjalda varhug við því og mér heyrist við hv. þingmaður vera sammála um það að við sláum ekki svo mikið af kröfum til einföldunar á kerfinu að það geti valdið einhverjum varanlegum skaða. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, bæði hefur tæknin og upplýsingarnar snarbatnað og það er heilmikil geta víða í kerfinu.

Ég kem hér upp m.a. vegna þess að eitt af því sem lagt er upp með eru þessi stærðarviðmið, það þurfi að endurskoða þau. Það er eitt af því sem ég og hv. þingmaður sammæltumst um með nefndaráliti meiri hlutans við afgreiðslu á 3. áfanga rammaáætlunar varðandi stærðarviðmiðin í hinn endann, 10 MW, að reynslan sýndi okkur að þau væru ekki nægilega góð. Við erum í rauninni að leggja það til við löggjafann að hann endurskoði þetta stærðarviðmið við endurskoðun á lögum um rammaáætlun sem smávirkjanirnar falla sannarlega ekki undir. En þá langar mig kannski að spyrja hvort hv. þingmaður þekki dæmi þess eða sé sammála því að hugsanlega megi horfa á þetta með tilliti til mikilvægis laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, hvort hv. þingmaður sé sammála því að hugsanlega mætti gera einhverja tilraun til að skipta þessu upp, annaðhvort eftir stærð eða mögulegu umfangi umhverfisáhrifanna sjálfra. Það er akkúrat það sem við gagnrýndum í meiri hlutanum á sínum tíma með stærðarviðmiðið um 10 MW. Það hafa því miður verið brögð að því að fólk hafi vandað sig við að koma með tillögur sem eru rétt undir mörkum svo að framkvæmdin falli ekki undir þá löggjöf. Við getum ekki verið sammála því að það eigi að fara á svig við í rauninni mikilvægi þess að við göngum varlega um, m.a. í þágu þess að nýta gæðin sem við getum nýtt án þess að hafa of mikil raskandi áhrif.