154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

framlagning stjórnarmála.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Af þessu tilefni vill forseti segja að staða varðandi framlagningu mála er með svipuðum hætti og var á síðasta ári en forseti hefur vakið athygli á því að áform um að mál kæmu fyrr inn en ella hafa ekki enn þá skilað árangri. Það er ábending sem forseti hefur komið á framfæri og mun ítreka við hæstv. ríkisstjórn.